Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd. Hlutverk hennar er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála. Á það er lögð áhersla að kveða upp vandaða úrskurði eins fljótt og kostur er og jafnan innan þriggja mánaða frá því að málsgögn bárust frá stjórnvaldi, svo sem mælt er fyrir um í lögum um nefndina nr. 130/2011. Sé mál viðamikið skal nefndin kveða upp úrskurð innan sex mánaða frá sama tímamarki.
Á árinu 2025 bárust úrskurðarnefndinni kærur í 193 málum og var afgreiðslu lokið í 220 málum, en þar af lauk 116 málum með efnisúrskurðum, 74 málum með frávísunarúrskurðum, 28 málum lauk með því að kærendur afturkölluðu kærur sínar og tveimur málum með framsendingu.
Úrskurðarnefndin kvað upp 191 úrskurði á árinu, en í sumum tilvikum eru nokkur kærumál sameinuð í eitt og kveðinn upp einn úrskurður fyrir þau öll. Þá getur í úrskurði einnig verið tekið á kröfu um stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa til bráðabirgða og er í slíkum úrskurði því ekki að finna endanlega niðurstöðu.
Meðalafgreiðslutími lokinna kærumála hjá úrskurðarnefndinni var 1,9 mánuðir en sé einvörðungu litið til þeirra mála sem lauk með úrskurði var meðalafgreiðslutími 2,1 mánuðir frá því gögn bárust en 3,1 mánuðir miðað við þegar kæra barst nefndinni. Málum var lokið innan lögbundins málsmeðferðartíma í 86% tilvika.
Efni þeirra kærumála sem afgreidd voru á árinu skiptist svo:
| Aðalskipulag | 1 |
| Aðgerðarleysi | 1 |
| Afgreiðsla stjórnvalds | 4 |
| Byggingarleyfi | 42 |
| Byggingarleyfisskylda | 3 |
| Deiliskipulag | 36 |
| Dráttur á afgreiðslu máls | 2 |
| Eignaskiptayfirlýsing | 1 |
| Framkvæmdaleyfi | 30 |
| Löggilding | 1 |
| Matsskylda | 8 |
| Önnur gjöld | 1 |
| Rekstrarleyfi | 6 |
| Starfsleyfi | 20 |










Nýlegar athugasemdir