Reglur úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um heimildir formanns til afgreiðslu mála samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011.

Formaður getur einn kveðið upp úrskurð í máli með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í eftirtöldum tilvikum:

a.  Ef vísa skal máli frá vegna þess að það eigi ekki undir úrskurðarnefndina, kærandi eigi ekki lögvarða hagsmuni eða að kærufrestur sé liðinn.

b.  Þegar krafist er stöðvunar framkvæmda til bráðabrigða, enda sé mál einfalt og hagsmunir ekki verulegir.

c.  Þegar leyst er úr efni máls og úrlausn þess varðar aðeins lagaleg álitaefni, hefur ekki fordæmisgildi og snertir ekki mikla hagsmuni.

Leiki vafi á um það hvort framangreindar heimildir eigi við um tiltekið mál, getur formaður leitað úrlausnar úrskurðarnefndarinnar svo skipaðri sem hún myndi vera við meðferð viðkomandi máls. Formaður tekur þó ekki þátt í afgreiðslu nefndarinnar semkvæmt ákvæði þessu.

Formaður skal gera nefndinni grein fyrir þeim úrskurðum sem hann kveður upp með stoð í framangreindum reglum.