Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2606004 Brekkustígur

Árið 2026, mánudaginn 29. júní, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2606004, kæra á ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 5. maí 2026 um að leggja dagsektir á Premium of Iceland ehf. þar til starfsemi félagsins að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ hafi verið stöðvuð. 

Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur

úrskurður

um kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa:

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. júní 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir Premium of Iceland ehf., Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ, þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 5. maí 2026 að leggja á félagið dagsektir að fjárhæð kr. 50.000 frá og með 22. maí 2026, þar til starfsemi félagsins hafi verið stöðvuð. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Þess er jafnframt krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað þar til endanlegur úrskurður liggur fyrir um kröfu kæranda í málinu. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja 16. júní 2026.

Málsatvik og rök

  1. Með bréfi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 8. september 2025, var Premium of Iceland ehf. tilkynnt að embættið hefði tekið til meðferðar mál fyrirtækisins sem tengdist starfsemi þess á starfsstöð þess að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ. Umrædd starfsemi falli undir reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í reglugerðinni væri að finna skýr ákvæði um ábyrgðir rekstraraðila sem og skráningarskyldu vegna breytinga á starfsemi. Var fyrirtækinu veittur frestur til 11. s.m. til að leggja fram fullnægjandi skráningu í skráningargátt.
  1. Kærandi sótti rafrænt um skráningu fyrirtækisins hinn 15. s.m. í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 830/2022. Með bréfi, dags. 10. október s.á., tilkynnti heilbrigðiseftirlitið fyrirtækinu að áformað væri að hafna umsókninni á grundvelli umsagnar skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar, dags. 2. október 2025, þar sem fram kæmi að starfsemi fiskvinnslu samræmdist ekki ákvæðum gildandi aðalskipulags. Með bréfi, dags. 12. desember s.á., var kæranda tilkynnt um ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 10. s.m. um höfnun skráningar. Heilbrigðiseftirlitið sendi kæranda kröfu um lokunaráætlun með bréfi, dags. 4. febrúar 2026 og með bréfi, dags. 21. apríl s.á., gerði heilbrigðiseftirlitið kröfu um að fyrirtækið léti án tafar af starfsemi fiskvinnslu að Brekkustíg 22–24 þar sem það hefði ekki samþykkta skráningu til starfseminnar. Þá var tilkynnt um áform um að leggja á fyrirtækið dagsektir sbr. 61. gr. laga nr. 7/1998. Var kæranda gefinn frestur til að koma að sjónarmiðum sínum og afstöðu til fyrirhugaðra dagsekta. Kærandi mótmælti fyrirhugaðri álagningu dagsekta með bréfi, dags. 28. s.m.
  1. Á fundi heilbrigðisnefndar Suðurnesja 5. maí s.á. var staðfest krafa heilbrigðiseftirlitsins um stöðvun á starfsemi félagsins. Til þess að knýja á um að ákvörðun nefndarinnar um höfnun skráningar var samþykkt að leggja á fyrirtækið dagsektir að upphæð kr. 50.000 frá og með 22. s.m. þar til starfsemin hefði verið stöðvuð. Var kæranda tilkynnt um ákvörðunina með bréfi, dags. 7. s.m., og það hin kærða ákvörðun í máli þessu. Kæranda var veittur rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun með bréfi, dags. 15. s.m.
  1. Kærandi vísar til þess að umsögn skipulagsfulltrúa sé ekki í samræmi við Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020–2035 og að litið hafi verið fram hjá því að í aðalskipulagi sé gert ráð fyrir að settar verði frekari kvaðir um takmarkanir á starfsemi í deiliskipulagi. Úrskurðarnefndin hafi í úrskurði sínum frá 15. febrúar 2024, í máli nr. 124/2023, fellt úr gildi sambærilega ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja. Þá sé það hlutverk heilbrigðisnefndar að fara með eftirlit með skráningarskyldum atvinnurekstri og beri ábyrgð á að staðreyna hvort starfsemi uppfylli skilyrði skráningar. Þeirri ábyrgð verði ekki útvistað til skipulagsfulltrúa.
  1. Af hálfu heilbrigðisnefndar Suðurnesja vísað til þess að dagsektir séu íþyngjandi þvingunarúrræði sem geti haft fjárhagsleg áhrif frá degi til dags á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Í ljós eðlis úrræðisins telji heilbrigðisnefndin málefnalegt að fallast á afmarkaða frestun réttaráhrifa, enda verði frestunin ekki túlkuð sem heimild fyrir kæranda til að starfrækja skráningarskylda starfsemi án þess að fullnægja lögbundnum skilyrðum. Afstaða heilbrigðisnefndarinnar sé bundin við ákvörðun um álagningu dagsekta og feli hvorki í sér viðurkenningu á málsástæðum kæranda né breytta afstöðu til lögmætis hinnar kærðu ákvörðunar.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála frestar kæra til nefndarinnar ekki réttaráhrifum ákvörðunar en kærandi getur þó krafist úrskurðar um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Sé um að ræða ákvörðun sem ekki felur í sér heimild til framkvæmda getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum hennar komi fram krafa um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. 5. gr. Hefur úrskurðarnefndin á grundvelli þessa ákvæðis sjálfstæða heimild til frestunar réttaráhrifa í tengslum við meðferð kærumáls, en sú heimild er undantekning frá þeirri meginreglu að kæra fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar og ber því að skýra hana þröngt.
  1. Í máli þessu er kærð sú ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 5. maí 2026 að leggja á félagið dagsektir að fjárhæð kr. 50.000 frá og með 22. maí 2026, þar til starfsemi félagsins hafi verið stöðvuð.
  1. Kærandi hefur nýtt sér lögbundinn rétt sinn til að bera lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar undir úrskurðarnefndina. Ljóst er að álagning dagsekta er íþyngjandi ákvörðun og að kærandi á fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Eins og málsatvikum er háttað þykir rétt að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar, enda liggja ekki fyrir knýjandi ástæður sem gera það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um ágreiningsefni máls þessa. Þá er og litið til þess að gera verður ráð fyrir að meðferð málsins hjá nefndinni verði lokið innan lögbundins málsmeðferðartíma skv. 6. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Þykir því rétt að fallast á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa.

Úrskurðarorð

Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar heilbrigðisnefndar Suðurnesja um að leggja dagsektir á Premium of Iceland ehf. þar til starfsemi félagsins að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ hafi verið stöðvuð.