Árið 2026, mánudaginn 11. maí, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2603011, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. september 2024 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir gistiheimili, gróðurhúsi og geymsluskúr á jörðinni Hrafnhólum á Kjalarnesi.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, 20. mars 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi jarðarinnar Þverárkots, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. september 2024 að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir gistiheimili, gróðurhúsi og geymsluskúr á jörðinni Hrafnhólum á Kjalarnesi. Verður að skilja málskot kæranda svo að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 24. mars 2026.
Málsatvik og rök
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 30. júlí 2024 var lögð fram umsókn um leyfi til byggingar gistiheimilis, gróðurhúss og geymsluskúrs á jörðinni Hrafnhólum. Um er að ræða jarðeign sem er á ódeiliskipulögðu svæði. Afgreiðslu málsins var frestað á fundinum. Í athugasemd skipulagsfulltrúa sem fylgdi gögnum málsins, dags. 14. ágúst 2024, var samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin væri ekki talin varða hagsmuni annarra en umsækjenda, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 24. september 2024 var málið tekið fyrir að nýju og umsókn um byggingarleyfi samþykkt. Á uppdrætti með umsókninni kom fram að tegund gististaðar verði „B. Stærra gistiheimili“ í flokki III. Gefið var út byggingarleyfi 1. október s.á.
- Kærandi telur að ekki liggi fyrir skýr ákvörðun um leyfisveitingu eða heimild fyrir þeim framkvæmdum sem eigi sér stað á Hrafnhólum. Þá liggi ekki fyrir hvort gildandi skipulag heimili fyrirhugaða starfsemi, en framkvæmdirnar séu umfangsmiklar og feli í sér breytta landnotkun sem krefjist skýrra skipulagsheimilda samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010. Starfsemin hafi í för með sér aukna umferð, álag og röskun á viðkvæmu náttúru- og útivistarsvæði og svæðis sem skilgreint sé sem landbúnaðarsvæði.
- Af hálfu Reykjavíkurborgar kemur fram að í tilefni af fyrirspurnum frá kæranda hafi öll gögn málsins verið skoðuð ítarlega. Við nánari skoðun á aðaluppdráttum hafi komið í ljós texti um gististað í flokki III. Hið útgefna byggingarleyfi hafi því „ekki verið í samræmi við gildandi skipulag fyrir Hrafnhóla.“ Byggingarfulltrúi hafi stöðvað framkvæmdir þann 26. mars 2026. Í kjölfarið hafi leyfishafi brugðist við og sent embætti byggingarfulltrúa uppfærða aðaluppdrætti þar sem flokkun gististaðar hafi verið breytt úr flokki III í flokk II. Breytingarerindið hafi verið samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 14. apríl s.á. Þá hafi stöðvun framkvæmda verið afturkölluð með bréfi, dags. 16. s.m. Ekki séu fyrir hendi ástæður til að ógilda hið kærða byggingarleyfi.
Niðurstaða
- Í máli þessu er kærð ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi á jörðinni Hrafnhólum, L125690, en kærandi er eigandi aðliggjandi jarðar, Þverárkots, L125776. Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 geta aðeins þeir sem eiga lögvarinna hagsmuna að gæta kært stjórnvaldsákvarðanir til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Skilyrði um lögvarða hagsmuni hefur verið túlkað svo að þeir einir teljist eiga lögvarða hagsmuni sem eiga einstaklingsbundinna hagsmuna að gæta af úrlausn máls umfram aðra og jafnframt að þeir hagsmunir séu verulegir.
- Hið kærða byggingarleyfi, ásamt síðari breytingum, felur í sér heimild til niðurrifs geymsluhúss og að í stað þess verði reist gistiheimili með átta herbergjum. Jafnframt felur leyfið í sér heimild til að byggja geymslu og gróðurhús. Við mat á því hvort hin umdeilda ákvörðun raski einstaklingsbundnum og verulegum hagsmunum kæranda verður m.a. að líta til fjarlægðar fasteignar kæranda frá hinum fyrirhuguðu framkvæmdum en ljóst er að þær munu standa í nokkurri fjarlægð frá bænum að Þverárkoti. Þykja framkvæmdir samkvæmt hinu kærða byggingarleyfi ekki vera þess eðlis að grenndarhagsmunum kæranda sé raskað þannig að teljist geti til verulegra hagsmuna. Verður máli þessu því vísað frá nefndinni.
Úrskurðarorð:
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
