Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2601015 Fannborg

Árið 2026, mánudaginn 9. febrúar, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2601015, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar um að aðhafast ekkert vegna niðurrifs Fannborgar 2. 

Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

  1. Með bréfi til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 15. janúar 2026, er barst ráðuneytinu sama dag og framsent var til úrskurðarnefndarinnar 16. s.m., kærir húsfélag Hamraborgar 10 þá ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar að aðhafast ekkert vegna niðurrifs húss á lóð Fannborgar 2. Verður að skilja málatilbúnað kæranda svo að þess sé krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Kópavogsbæ 28. janúar 2026.

Málsatvik og rök

  1. Hinn 14. janúar 2026 mun undirbúningur að niðurrifi hússins sem stendur á lóð Fannborgar 2 hafa hafist. Að því er segir í kæru fór kærandi næsta dag með kæru þessa máls á bæjarskrifstofur Kópavogs „í þeirri von að byggingarfulltrúi myndi grípa til aðgerða“. Byggingarfulltrúi fór á staðinn 16. s.m. og kom þá í ljós að búið var að rjúfa gat í skyggni á bygginguna. Síðar sama dag stöðvaði hann niðurrifið á þeim grundvelli að tilskilið leyfi lægi ekki fyrir. Hinn 3. febrúar s.á. gaf byggingarfulltrúi út leyfi fyrir niðurrifi hússins.
  1. Kærandi vísar til þess að niðurrif mannvirkis á lóð Fannborgar 2 í miðbæ Kópavogs hafi hafist án samþykkis bæjarstjórnar. Sé kæru beint að þeirri ákvörðun byggingarfulltrúa að aðhafast ekkert vegna niðurrifsins.
  1. Af hálfu Kópavogsbæjar er því andmælt að niðurrif hafi hafist 15. janúar 2026, enda hafi þá einungis verið búið að rjúfa gat í skyggni hússins til að koma að gámi upp við húsið. Gerð sé krafa um frávísun málsins þar sem engri kæranlegri ákvörðun byggingarfulltrúa um að aðhafast ekki sé til að dreifa. Þvert á móti hafi framkvæmdir verið stöðvaðar án tafar.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er það hlutverk nefndarinnar að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og í ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði. Kæruheimild til nefndarinnar er m.a. að finna í lögum nr. 160/2010 um mannvirki vegna stjórnvaldsákvarðana sem teknar eru á þeim lagagrundvelli.
  1. Í máli þessu er kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar að aðhafast ekkert vegna niðurrifs Fannborgar 2. Fyrir liggur að byggingarfulltrúi brást við ábendingu um óleyfisframkvæmdir og stöðvaði niðurrif hússins. Þá liggur einnig fyrir að búið er að gefa út byggingarleyfi fyrir niðurrifi hússins, en sú ákvörðun hefur verið kærð til úrskurðarnefndarinnar. Er það kærumál til meðferðar hjá nefndinni og er málsnúmer þess UUA2602010. Að því virtu liggur ekki fyrir hendi nein sú ákvörðun sem borin verður undir úrskurðarnefndina. Verður málinu af þeim sökum vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.