Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2511058 Heiðarbær

Árið 2026, þriðjudaginn 10. febrúar, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingar­verkfræðingur.

Fyrir var tekið mál nr. UUA2511058, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Bláskóga­byggðar frá 19. nóvember 2025 um að synja umsókn um heimild til að byggja við sumarhús í landi Heiðarbæjar í Þingvallasveit.

Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 26. nóvember 2025, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi sumarhúss á lóð með landnr. 170256 í landi Heiðarbæjar í Þingvallasveit, þá ákvörðun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar frá 5. nóvember 2025 að synja umsókn um heimild til að byggja við sumarhúsið. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 19. s.m. var málið tekið fyrir að nýju og umsókninni synjað. Verður litið svo á að það sé hin kærða ákvörðun í málinu. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og að byggingarheimild verði staðfest.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Bláskógabyggð 22. desember 2025.

Málavextir

  1. Hinn 10. júlí 2025 barst Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs., sem fer með verkefni skipulags- og byggingarfulltrúa í Bláskógabyggð, umsókn um 25,3 m2 viðbyggingu sumarhúss á lóð með landnr. 170256 í sumarbústaðalandinu Heiðarbæ í Þingvallasveit. Í byggingar­lýsingu með umsókninni kom fram að með nýrri viðbyggingu stækki bústaðurinn úr 128,1 m2 í 153,4 m2 og fari nýtingarhlutfall lóðar við það úr 0,030 í 0,036.
  1. Umsóknin var tekin fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 14. ágúst s.á. og var málinu vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag fyrir lóðina lægi ekki fyrir. Á fundi skipulagsnefndar 18. s.m. var bókað í fundargerð að nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að málsmeðferð verði á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndar­kynningar. Berist engar athugasemdir við grenndarkynningu skuli málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
  1. Erindið var grenndarkynnt 10. september 2025 og frestur til athugasemda veittur til 8. október s.á. Umsögn Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna, f.h. landeiganda, Ríkissjóðs Íslands, lá fyrir 25. s.m. Fram kom í umsögninni að þrátt fyrir að deiliskipulagstillögur frá árunum 2012 og 2023 hafi ekki tekið gildi telji landeigandi mikilvægt að við meðferð málsins sé horft til jafnræðisreglunnar og þeirra viðmiða sem þegar liggi fyrir í deiliskipulagi fyrir Heiðarbæ, sem nái til nærliggjandi lóða. Hámarksbyggingarmagn á lóðinni miðað við 0,03 nýtingarhlutfall sé 127,65 m2. Núverandi hús á lóðinni sé þegar af þeirri stærð og því sé ekki svigrúm fyrir stækkun án þess að vikið sé frá þeim viðmiðum sem gilt hafi um sambærilegar lóðir á svæðinu.
  1. Á fundi skipulagsnefndar 22. október 2025 var málið tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu og samþykkt að leggja til við sveitarstjórn að á grundvelli framlagðra athugasemda frá Framkvæmdasýslu Ríkisins yrði umsókn um byggingarheimild synjað. Á fundi sveitarstjórnar 5. nóvember s.á. var umsókninni synjað og á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 19. s.m. var tekið undir rök skipulagsnefndar og synjunin staðfest. 

Málsrök kæranda

  1. Kærandi álítur að umsókn hans um stækkun á sumarhúsi rúmist innan heimilda gildandi Aðalskipulags Bláskógarbyggðar 2015–2027. Þar komi fram í greinargerð að á frístunda­svæðum skuli lóðir að jafnaði vera á stærðarbilinu 0,5 – 1 ha og nýtingarhlutfall ekki hærra en 0,03. Á frístundalóðum sem séu minni en 0,5 ha geti nýtingarhlutfall verið allt að 0,05. Ekkert deiliskipulag sé í gildi fyrir svæðið. Í umsögn Framkvæmdasýslunnar sé einungis vísað í deiliskipulagstillögur frá árunum 2012 og 2023 sem ekki hafi öðlast gildi. Til samanburðar sé töluvert meira byggingarmagn á nágrannalóð heldur en á lóð kæranda. Sú lóð sé 3.210 m² og hafi þar verið reistur sumarbústaður árið 2009, en að meðtöldu bátaskýli á lóðinni séu byggingarnar 175 m² og nýtingarhlutfall 0,055. Vísað sé til jafnræðisreglu og bent á að málið varði ekki hagsmuni annara.

Málsrök Bláskógabyggðar

  1. Sveitarfélagið bendir á að í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015–2027 sé sumarhúsalóð kæranda á skilgreindu svæði fyrir frístunda­byggð merkt F4. Um svæðið komi fram í greinargerð aðalskipulagsins að ekkert deiliskipulag sé í gildi, þar séu 32 lóðir byggðar og stærð þess sé um 32 hektarar. Í kafla 2.3.2 í greinargerðinni sé tilgreint að á frístundasvæðum skuli lóðir að jafnaði vera á stærðarbilinu 0,5 til 1 ha að flatarmáli og nýtingarhlutfall skuli ekki vera hærra en 0,03. Í ákveðnum tilfellum geti þó frístundalóðir verið minni og nýtingarhlutfall allt að 0,05. Í eldri frístundabyggð skuli vera samræmi í stærð og nýtingarhlutfalli núverandi og nýrra lóða. Í þeim tilfellum geti lóðir verið minni en almennt gerist og nýtingarhlutfall allt að 0,05.
  1. Með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 26. apríl 2022 hafi verið sett skýrari ákvæði í aðalskipulag um frístundalóðir og sé nú í kafla 2.3.2 í greinargerð aðalskipulagsins kveðið á um að lóðarstærðir skuli að jafnaði vera á bilinu 0,5 til 1 ha, en í ákveðnum tilfellum, sérstaklega í eldri hverfum sem skipulögð hafi verið fyrir gildistöku aðalskipulagsins, geti frístundalóðir verið minni. Skuli nýtingarhlutfall þá ekki vera hærra en 0,03 nema á lóðum sem séu minni en 1/3 ha að stærð, en þar sé leyfilegt byggingarmagn 100 m2.
  1. Ekki sé í gildi deiliskipulag fyrir svæði F4. Deiliskipulag hafi aftur á móti verið unnið fyrir svæði F3 (Svínanes), sem sé sunnar í Heiðarbæjarlandi. Deiliskipulagstillagan hafi komið til meðferðar hjá sveitarfélaginu á grundvelli umsóknar frá Ríkiseignum um nýtt deiliskipulag fyrir umrætt svæði og verið samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar 20. desember 2023. Deiliskipulagið hafi svo verið samþykkt eftir auglýsingu á fundi sveitarstjórnar 20. ágúst 2025 og mælst til þess að það tæki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulags­stofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.

Viðbótarathugasemdir kæranda

  1. Í viðbótarathugasemdum sínum bendir kærandi á að lóðarstærð sumarhúss hans sé 4.255 m² og verði sambærilegir skilmálar settir í deiliskipulag fyrir svæði F4 eins og settir hafi verið um svæði F3, verði heimilað byggingarmagn á lóðinni 212,7 m². Með hinni kærðu ákvörðun hafi verið synjað um stækkun hússins svo verði 153,4 m² sem sé vel innan þeirra marka. 

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er deilt um lögmæti ákvörðunar Bláskógabyggðar frá 5. nóvember 2025 um að synja umsókn kæranda um heimild til að byggja við sumarhús í landi Heiðarbæjar, Bláskóga­byggð. Kæruheimild er í 59. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og barst kæra innan kærufrests.
  1. Samkvæmt Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015–2027, er svæðið sem sumarhúsalóð kæranda tilheyrir á skilgreindu svæði fyrir frístundabyggð merkt F4. Um svæði F4 kemur fram í greinargerð aðalskipulagsins að ekkert deiliskipulag sé í gildi en þar séu 32 lóðir byggðar og stærð þess sé um 32 hektarar. Í kafla 2.3.2 í greinargerð aðalskipulagsins er fjallað um frístundabyggð og var skilmálum í kafla þessum breytt árið 2022 eins og rakið hefur verið fyrir úrskurðarnefndinni. Eftir þá breytingu er áskilið að lóðarstærðir á frístundahúsasvæðum skuli að jafnaði vera á bilinu 0,5–1,0 ha. Í ákveðnum tilfellum, einkum í eldri hverfum sem skipulögð hafi verið fyrir gildistöku núgildandi aðalskipulags, geti frístundalóðir þó verið minni. Nýtingarhlutfall skuli þó ekki vera hærra en 0,03 nema á lóðum sem séu minni en 1/3 ha að stærð, en þar sé leyfilegt byggingarmagn 100 m². Með því að lóð kæranda er stærri en þeirri viðmiðun nemur fæst það ekki samrýmst aðalskipulagi að heimila aukið byggingarmagn á henni sem hækka mundi nýtingarhlutfall umfram heimildir skipulagsins. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.

Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúa Bláskógabyggðar frá 19. nóvember 2025 um að synja umsókn um heimild til að byggja við sumarhús í landi Heiðarbæjar í Þingvallasveit.