Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2511056 Bergstaðastræti

Árið 2025, mánudaginn 24. nóvember, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2511056, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. október 2025 um álagningu dagsekta að fjárhæð kr. 25.000 vegna garðveggjar á lóð Bergstaðastrætis 81.

 Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur

úrskurður

 um kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa:

Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. nóvember 2025, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi Bergstaðastrætis 81 þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. október 2025 að leggja á kæranda dagsektir að fjárhæð kr. 25.000 vegna garðveggjar á lóð Bergstaðastrætis 81. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir byggingarfulltrúa að taka óafgreidda umsókn kæranda til lögmætrar meðferðar. Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.

Málsatvik og rök: Í bréfi byggingarfulltrúans í Reykjavík til kæranda, dags. 2. júlí 2025, kom fram að deild afnota og eftirlits hjá umhverfis- og skipulagssviði hefði haft til skoðunar framkvæmdir á lóð kæranda að Bergstaðastræti 81. Búið væri að fjarlægja hluta af steyptum garðvegg með breyttri aðkomu á lóð. Rakið var að kærandi hafði sótt um breytta aðkomu að lóð sinni með gerð bílastæðis en þeirri beiðni hafi verið hafnað þar sem hún samræmdist ekki hverfisvernd samkvæmt aðalskipulagi. Var kæranda gert að færa steyptan garðvegg á lóð hans til fyrra horfs, en ef ekki yrði orðið við þeim tilmælum áformaði byggingarfulltrúi að leggja á dagsektir. Var kæranda veittur sjö daga frestur til andmæla og með bréfi, dags. 13. ágúst s.á., krafðist kærandi þess að ákvörðun byggingarfulltrúa frá 2. júlí s.á. yrði afturkölluð. Hafnaði byggingarfulltrúi þeirri beiðni 10. október 2025. Hinn 21. s.m. tók byggingarfulltrúi hina kærðu ákvörðun um álagningu dagsekta að fjárhæð kr. 25.000.

Kærandi telur að hin kærða ákvörðun gangi gróflega á heimildir kæranda til að nýta sér eignarheimild sína sem vernduð sé af 72. gr. stjórnarskrárinnar. Ákvörðunin sé byggð á röngum grunni, m.a. þar sem kærandi hafi endurbyggt hinn steypta garðvegg en ekki rofið hann. Endurbygging garðveggjarins fari saman við hverfisvernd svæðisins. Hin kærða ákvörðun sé haldin verulegum ágöllum sem leiða eigi til ógildingar hennar. Vegna kröfu um frestun réttaráhrifa sé bent á að kærandi hafi nýtt sér lögvarinn rétt sinn til að bera lögmæti hennar undir úrskurðarnefndina. Við blasi að kæruheimild verði þýðingarlaus með öllu ef ekki verði fallist á frestun réttaráhrifa. Um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða sem beinist eingöngu að kæranda og hafi í för með sér verulegan tilkostnað, rask og verðmætasóun.

Niðurstaða: Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kærendum þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um frestun réttaráhrifa.

Tekið er fram í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum t.d. tjóni. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af hinu æðra stjórnvaldi.

Í máli þessu er kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. október 2025 að leggja á dagsektir að fjárhæð kr. 25.000 þar til kærandi hafi orðið við þeim tilmælum embættisins að færa steyptan garðvegg á lóð þeirra hans við Bergstaðastræti 81 til fyrra horfs. Kærandi hefur nýtt sér heimild til að bera lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar undir úrskurðarnefndina, en um íþyngjandi ákvörðun er að ræða sem beinist einungis að honum. Eins og málsatvikum er háttað þykir rétt að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar, enda liggja ekki fyrir knýjandi ástæður sem gera það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um ágreiningsefni máls þessa.

Úrskurðarorð:

Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. október 2025 um álagningu dagsekta að fjárhæð kr. 25.000 vegna garðveggjar á lóð Bergstaðastrætis 81.