Árið 2025, mánudaginn 24. nóvember, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2511055, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 20. október 2025 um að fjarlægja beri smáhýsi af lóð Vogalands 7 eða færa það 3,0 m frá lóðarmörkum Vogalands 9.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
úrskurður
um kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa:
Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. nóvember 2025, er barst nefndinni sama dag, kæra eigendur Vogalands 7 þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 20. október 2025 að gera kærendum að fjarlægja smáhýsi af lóð þeirra eða færa það 3,0 m frá lóðarmörkum Vogalands 9. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
Málsatvik og rök: Í byrjun september 2025 reistu kærendur smáhýsi, þ.e. þurrgufuklefa, á lóð sinni Vogaland 7 við mörk þeirrar lóðar og lóðar Vogalands 9. Annar eigenda Vogalands 9 hafði samband við Reykjavíkurborg 9. s.m. og upplýsti borgaryfirvöld um að smáhýsið væri án samþykkis þeirra sem eiganda aðliggjandi lóðar. Byggingarfulltrúinn í Reykjavík sendi bréf til kærenda, dags. 29. september 2025, þar sem bent var á að samþykki eigenda Vogalands 9 væri áskilið fyrir smáhýsinu í samræmi við f-lið gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Voru kærendur upplýstir um þau áform embættisins að gera þeim að fjarlægja smáhýsið af lóðinni eða færa það 3,0 m frá lóðarmörkum Vogalands 9. Var kærendum veittur sjö daga frestur til að koma að andmælum. Með bréfi byggingarfulltrúa, dags. 20. október 2025, var kærendum veittur 30 daga frestur til að fjarlægja eða færa smáhýsið. Í bréfinu var vísað til þess að ákvörðunin væri byggð á 2. mgr. 55. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki auk þess sem veittar voru kæruleiðbeiningar.
Af hálfu kærenda er bent á að annar þinglýstra eigenda Vogalands 9 hafi veitt samþykki sitt fyrir smáhýsinu áður en framkvæmdir hafi hafist. Kærendur hafi því verið í góðri trú og haft réttmætar væntingar um að framkvæmdirnar væru lögmætar. Ekkert heildstætt og atviksbundið mat hafi legið til grundvallar ákvörðun byggingarfulltrúa. Að auki verði ekki séð að hið íþyngjandi ákvæði f-liðar gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð, um samþykki eigenda aðliggjandi lóðar, eigi sér stoð í lögum um mannvirki. Hvað varðar kröfu um frestun réttaráhrifa er tekið fram að um sé að ræða íþyngjandi ákvörðun og engar knýjandi ástæður geri það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndar um ágreiningsefni þessa máls.
Niðurstaða: Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kærendum þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um frestun réttaráhrifa.
Tekið er fram í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum t.d. tjóni. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af hinu æðra stjórnvaldi.
Í máli þessu er kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 20. október 2025 að krefjast þess af kærendum að þeir fjarlægi smáhýsi á lóð þeirra að Vogalandi 7 eða færi það 3,0 m frá lóðarmörkum Vogalands 9. Kærendur hafa nýtt sér heimild til að bera lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar undir úrskurðarnefndina, en um íþyngjandi ákvörðun er að ræða sem beinist einungis að þeim. Eins og málsatvikum er háttað þykir rétt að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar, enda liggja ekki fyrir knýjandi ástæður sem gera það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um ágreiningsefni máls þessa.
Úrskurðarorð:
Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 20. október 2025 um að gera kærendum að fjarlægja smáhýsi á lóð þeirra að Vogalandi 7 eða færa það 3,0 m frá lóðarmörkum Vogalands 9.
