Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

158/2025 Gauksstaðir

 

Árið 2025, miðvikudaginn 19. nóvember, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. 158/2025, kæra á ákvörðun bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulag Gauksstaða (L196408) fyrir ferðaþjónustu.

 Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur

úrskurður

um kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda:

Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 14. október 2025, er barst nefndinni sama dag, kæra eigendur og íbúar Gauksstaðavegar 2 og 6, Sunnubrautar 25, Varavegar 8, 9 og 14, Skeggjastaða og Gauksstaða (L130742) í Garði, þá ákvörðun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 að samþykkja deiliskipulag Gauksstaða (L196408) fyrir ferðaþjónustu. Er þess aðallega krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi, en til vara að úrskurðarnefndin mæli fyrir um tiltekin skilyrði fyrir gildistöku hins kærða deiliskipulags, breyti efni skipulagsins með tilteknum hætti eða leggi fyrir Suðurnesjabæ að taka nýja ákvörðun. Að auki er þess krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar til bráðabirgða á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.

Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Suðurnesjabæ 14. nóvember 2025.

Málsatvik og rök: Á fundi framkvæmda- og skipulagsráðs Suðurnesjabæjar 18. september 2024 var tekið fyrir erindi eiganda Gauksstaða (L196408) um tillögu að deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu, en í tillögunni fólst að útbúa á landareigninni gistirými í ferðaþjónustuhúsum auk þjónustubyggingar. Var samþykkt að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni breytingu á aðalskipulagi. Á fundi bæjarstjórnar 2. október 2024 var afgreiðsla ráðsins samþykkt. Deiliskipulagstillagan var auglýst til kynningar 12. nóvember s.á. með athugasemdafresti til 31. desember s.á. Bárust fjölmargar athugasemdir á kynningartíma og voru í kjölfarið gerðar breytingar á tillögunni. Á fundi framkvæmda- og skipulagsráðs 18. júní 2025 var samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna og fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagið til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga. Var sú afgreiðsla staðfest á fundi bæjarráðs 25. s.m. Tók deiliskipulagið gildi með birtingu auglýsingar nr. 974/2025 í B-deild Stjórnartíðinda 15. september 2025.

Krafa kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða er rökstudd með vísan til þess að um sé að ræða afar umfangsmiklar ráðagerðir sem séu óafturkræfar auk þess sem hin kærða ákvörðun sé mjög vafasöm að formi og efni til.

Suðurnesjabær bendir á að gildistaka deiliskipulags feli ekki í sér heimild til að hefja framkvæmdir heldur þurfi til þess sérstaka stjórnvaldsákvörðun, s.s. framkvæmda- eða byggingarleyfi. Því sé að jafnaði ekki tilefni fyrir úrskurðarnefndina að stöðva framkvæmdir eða fresta réttaráhrifum í kærumálum sem varða gildi deiliskipulagsákvarðana.

Niðurstaða: Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda séu þær hafnar eða yfirvofandi, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Þá getur úrskurðarnefndin að sama skapi frestað réttaráhrifum ákvörðunar komi fram krafa um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. 5. gr. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa.

Mál þetta snýst um gildi deiliskipulagsákvörðunar. Gildistaka deiliskipulags felur ekki í sér heimildir til að hefja framkvæmdir heldur þarf til að koma sérstök stjórnvaldsákvörðun sem kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar, s.s. veiting byggingar- eða framkvæmdaleyfis, sbr. 11. og 13. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og 13., 14. og 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í kærumáli vegna slíkra leyfisveitinga er unnt að gera kröfu um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða skv. 5. gr. laga nr. 130/2011, enda framkvæmdir fyrst þá yfirvofandi í skilningi 2. mgr. ákvæðisins. Er því almennt ekki tilefni til að beita heimild til stöðvunar framkvæmda eða frestun réttaráhrifa í kærumálum er varða gildi deiliskipulagsákvarðana. Þegar litið er til fyrrgreindra lagaákvæða og eðlis skipulagsáætlana verður ekki séð að tilefni sé til að fallast á kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda á grundvelli hinnar kærðu deiliskipulagsbreytingar.

 Úrskurðarorð:

Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda á grundvelli hinnar kærðu deiliskipulagsákvörðunar.