Árið 2025, mánudaginn 8. september, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. 98/2025, kæra á ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 2. júlí 2025 um að hafna beiðni um útgáfu starfsleyfis til bráðabirgða vegna reksturs Hótels GEÓ að Víkurbraut 58 í Grindavík.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 2. júlí 2025, kærir A, f.h. Brimex ehf., þá ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 2. júlí 2025 að hafna beiðni um útgáfu starfsleyfis til bráðabirgða vegna reksturs Hótels GEÓ að Víkurbraut 58 í Grindavík. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og að Umhverfis- og orkustofnun verði gert að veita umsótt bráðabirgðaleyfi.
Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Umhverfis- og orkustofnun 16. júlí 2025.
Málavextir: Hinn 23. júní 2025 barst heilbrigðiseftirliti Suðurnesja umsókn kæranda um starfsleyfi fyrir rekstur gististaðarins Hótel GEO að Víkurbraut 58 í Grindavík. Sama dag barst Umhverfis- og orkustofnun umsókn kæranda um bráðabirgðaheimild fyrir starfseminni á grundvelli 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Fram kemur í umsókninni að brýn þörf sé á að hefja rekstur 1. júlí 2025 vegna fyrirliggjandi bókana í tengslum við ferðamannasumar og svæðisbundna eftirspurn í kjölfar opnunar Grindavíkur. Tafir á útgáfu starfsleyfis geti valdið verulegu fjárhagslegu tjóni og hindrað uppbyggingu á svæðinu. Næsta dag óskaði Umhverfis- og orkustofnun eftir umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja vegna umsóknar kæranda og barst umsögn eftirlitsins 26. s.m. Með bréfi, dags. 30. s.m., tilkynnti Umhverfis- og orkustofnun kæranda um áform stofnunarinnar um að hafna ósk um bráðabirgðaheimild. Hin kærða ákvörðun stofnunarinnar um að hafna beiðni kæranda um bráðabirgðaheimild var tekin 2. júlí 2025 og tilkynnt honum sama dag.
Málsrök kæranda: Kærandi telur að öll skilyrði fyrir útgáfu bráðabirgðaheimildar hafi verið uppfyllt. Lögð hafi verið fram rökstudd beiðni 23. júní 2025 þar sem fram hafi komið að fyrirhuguð starfsemi væri fullbúin til rekstrar, öll formsatriði hafi verið uppfyllt og fyrir lægju jákvæðar umsagnir frá lögbundnum aðilum, m.a. slökkviliði, byggingarfulltrúa, lögreglu og bæjaryfirvöldum. Sérstaklega sé á það bent að bæjarráð Grindavíkur hafi samþykkt 1. júlí s.á. formlega bókun þess efnis að það geri ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis fyrir Hótel GEO, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir frá öðrum fagstofnunum.
Um sé að ræða starfsemi sem hafi verið með bókaða gesti á háannatíma ferðaþjónustu í sveitarfélagi þar sem uppbygging og efnahagsleg endurreisn séu brýn. Synjunin hafi byggt á ómálefnalegri þrengingu lagaskilyrða þar sem Umhverfisstofnun líti svo á að skilyrði bráðabirgðaheimildar séu aðeins uppfyllt í tilvikum sem varða náttúruhamfarir eða fyrri rekstur. Slík þrenging á gildissviði 7. gr. a. laga nr. 7/1998 eigi sér enga lagastoð og gangi gegn tilgangi ákvæðisins, sem sé að veita sveigjanleika í tilvikum þar sem tafarlaus opnun sé réttlætanleg vegna raunverulegrar þarfar. Þá brjóti ákvörðunin í bága við 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, um meðalhóf og gegn 75. gr. stjórnarskrárinnar sem kveði á um að takmörkun á atvinnurekstri þurfi að vera lögmæt, málefnaleg og nauðsynleg.
Málsrök Umhverfis- og orkustofnunar: Stofnunin telur að ekki sé um undantekningartilvik að ræða sem geti réttlætt veitingu bráðabirgðaheimildar. Slíkri heimild sé einkum ætlað að tryggja áframhaldandi starfsemi við sérstakar aðstæður, en ekki til að hefja nýja starfsemi berist umsókn of seint, nema í sérstökum undantekningartilvikum s.s. vegna náttúruvár líkt og um ræddi í jarðborunarmálinu á Reykjanesi. Mál kæranda sé í lögbundnu ferli hjá heilbrigðiseftirlitinu sem hafi brugðist skjótt við umsókn rekstraraðila um starfsleyfi. Í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja sé ekki tekin afstaða til þess hvort brýn nauðsyn sé fyrir útgáfu bráðabirgðaheimildar. Umsögnin sé því hlutlaus að og leggi ekki mat á nauðsyn veitingarinnar. Að mati Umhverfis- og orkustofnunar liggi ekki fyrir fordæmi um að bráðabirgðaheimild hafi verið veitt í sambærilegu máli.
Að lokum vísar stofnunin til erindis úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til kæranda, dags. 7. júlí 2025, er barst stofnuninni með tölvupósti þann 9. júlí sl., þar sem hafnað var beiðni kæranda um flýtimeðferð skv. 4. gr. laga nr. 130/2011. Í svarbréfi nefndarinnar sé m.a. bent á að það heyri til algerra undantekninga að veita kærumálum flýtimeðferð. Að mati nefndarinnar hafi ekki verið álitið að slíkar aðstæður væru uppi að réttlætanlegt þætti að veita því sérstakan forgang umfram önnur fyrirliggjandi mál. Framangreint svarbréf, til viðbótar þeim málsrökum sem hér hafi verið rakin, styðji við þá niðurstöðu að ekki hafi verið fyrir hendi sérstakt undantekningartilvik þar sem brýn þörf væri á að hefja eða halda áfram starfsemi.
Niðurstaða: Í máli þessu er deilt um lögmæti ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar frá 2. júlí 2025 um að hafna beiðni um útgáfu starfsleyfis til bráðabirgða vegna reksturs Hótels GEÓ að Víkurbraut 58 í Grindavík. Á fundi Heilbrigðisnefndar Suðurnesja 27. ágúst 2025 og á meðan málið var til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni var kæranda veitt starfsleyfi fyrir rekstri hótelsins og veitingastaðar. Í ljósi þessa verður kærumáli þessi vísað frá úrskurðarnefndinni, enda á kærandi ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn nefndarinnar um höfnun á útgáfu bráðabirgðaleyfis.
Úrskurðarorð:
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
