Árið 2025, föstudaginn 19. desember, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála fyrir:
Mál nr. UUA2512005, erindi Reykjavíkurborgar um að úrskurðarnefndin skeri úr um hvort uppsetning auglýsingaskilta innanhúss í gluggum bygginga sé háð byggingarleyfi.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með erindi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 10. desember 2025, er barst nefndinni 11. s.m, óskar Reykjavíkurborg eftir áliti úrskurðarnefndarinnar á því hvort uppsetning auglýsingaskilta sem staðsett séu innanhúss og snúi út að götu sé háð byggingarleyfi skv. 9. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.
Málsatvik og rök: Í bréfi sínu til úrskurðarnefndarinnar vísar Reykjavíkurborg til þess að skv. 2. mgr. gr. 2.5.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 sé kveðið á um að „sækja [skuli] um byggingarleyfi fyrir öllum frístandandi skiltum og skiltum á byggingum sem eru yfir 1,5 m² að flatarmáli. Undanþegin eru þó skilti allt að 2,0 m² að stærð sem ætlað er að standa skemur en tvær vikur sem og skilti sem sett eru upp samkvæmt ákvæðum umferðarlaga.“ Verði að mati borgarinnar ekki ráðið af orðalaginu „skiltum á byggingum“ hvort ákvæðið taki eingöngu til skilta utanhúss eða nái jafnframt til skilta sem séu innanhúss.
Niðurstaða: Í máli þessu er tekið fyrir erindi Reykjavíkurborgar um að úrskurðarnefndin veiti álit sitt á því hvort ákvæði 2. mgr. gr. 2.5.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 um byggingarleyfisskyldu skilta taki hvort tveggja til skilta á byggingum og til skilta sem séu innanhúss og snúi að götu. Er erindið lagt fram með vísan til 4. mgr. 9. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki, sem kveður á um að ef vafi leiki á því hvort mannvirki sé háð byggingarleyfi eða falli undir 2. eða 3. mgr. ákvæðisins skuli leita niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar.
Með erindinu fylgdu ljósmyndir af nokkrum auglýsingaskiltum í gluggum bygginga. Nánari upplýsingar eru hins vegar ekki veittar, svo sem hvort fyrir sé að fara ágreiningi um byggingarleyfisskyldu skiltanna. Verður því að líta svo á að um sé að ræða almenna fyrirspurn, en lögspurningar, sem ekki tengjast tilteknum fyrirliggjandi ágreiningi, falla utan verksviðs úrskurðarnefndarinnar, svo sem hlutverk nefndarinnar er afmarkað í 1. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Verður af þeim sökum að vísa máli þessu frá nefndinni.
Sú ábending er að lokum gerð að skv. 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga um mannvirki annast Húsnæðis- og mannvirkjastofnun m.a. gerð leiðbeininga á fagsviði stofnunarinnar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra hagsmunaaðila.
Úrskurðarorð:
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
