Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

144/2025 Gunnarsholt

Árið 2025, miðvikudaginn 19. nóvember, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. 144/2025, kæra á óleyfisframkvæmdum Barna- og fjölskyldustofu í húsinu Miðgarði í Gunnarsholti á Rangárvöllum vegna ráðgerðs rekstrar meðferðarheimilis fyrir unglinga.

 Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. september 2025, kærir íbúi í íbúabyggð á Gunnarsholtsvegi,  Gunnarsholti á Rangárvöllum, óleyfisframkvæmd Barna- og fjölskyldustofu í húsinu Miðgarði í Gunnarsholti vegna ráðgerðs rekstrar meðferðarheimilis fyrir unglinga.

Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Rangárþingi ytra 27. október 2025.

Málsatvik og rök: Á fundi skipulags- og umferðarnefndar Rangárþings ytra 18. september 2025 var tekin fyrir umsókn Barna- og fjölskyldustofu um leyfi til breytingar á húsinu Miðgarði í Gunnarsholti í því skyni að hýsa þar meðferðarúrræði fyrir ungmenni. Var því lýst að framkvæmdin fælist í því að mæta kröfum brunahönnunar og aðlaga húsið að neyðarvistun fyrir ungmenni. Umsóknin var samþykkt og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi ef nauðsynlegt yrði talið að afla þess til að „klára standsetningu húsnæðisins“. Byggingarfulltrúi gaf út byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni 27. september 2025.

Kærandi vísar til þess að hinn 22. ágúst 2025, hafi verið birt grein á vef Morgunblaðsins með viðtali við oddvita sveitarstjórnar Rangárþings ytra ásamt mynd af mönnum við vinnu á þaki Miðgarðs í Gunnarsholti. Kærandi hafi hvorki vitað né mátt vita að framkvæmdir væru hafnar við breytingu á húsnæðinu. Fyrirhuguð starfsemi, sem ætluð sé ungmennum með alvarlegan vanda, falli undir notkunarflokk 5, jafnvel 6, samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012, en ekki flokk 2 eða 3 eins og gögn sveitarfélagsins gefi til kynna. Starfsemin falli ekki að öllu leyti að stefnu aðalskipulags fyrir þetta svæði, en auk þess brjóti hún gegn grenndarrétti kæranda. Þrátt fyrir að grenndarkynning hafi farið fram hafi möguleikar kæranda til að gæta hagsmuna sinna af málinu verið takmarkaðir. Meðal þeirra krafna sem kærandi geri sé að yfirstandandi óleyfisframkvæmdir verði stöðvaðar, fram fari fullnægjandi rannsókn og mat á áhrifum starfseminnar, hún verði flokkuð réttilega samkvæmt byggingarreglugerð í notkunarflokki 5 eða 6 með tilliti til öryggisráðstafana vegna brunavarna og skýr afstaða verði tekin til þess hvort ráðgerð starfsemi samrýmist stefnu aðalskipulags. Sökum þess hvernig staðið hafi verið að hinni kærðu ákvörðun sé þess jafnframt krafist að sveitarfélagið taki afstöðu til þess hvort yfirstandandi framkvæmdir séu byggingarleyfisskyldar.

 Rangárþing ytra fer fram á frávísun kærumálsins þar sem engin tiltekin stjórnvaldsákvörðun hafi verið kærð og að kærandi hafi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.

Niðurstaða: Samkvæmt 1. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur úrskurðarnefndin það hlutverk að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði. Kæruheimild til nefndarinnar er m.a. að finna í lögum nr. 160/2010 um mannvirki vegna stjórnvaldsákvarðana sem teknar eru á þeim lagagrundvelli.

Í kæru er því lýst að kærð sé óleyfisframkvæmd Barna- og fjölskyldustofu Barna- og fjölskyldustofu í húsinu Miðgarði í Gunnarsholti vegna ráðgerðs rekstrar meðferðarheimilis fyrir unglinga. Undir rekstri þessa máls óskaði úrskurðarnefndin eftir frekari skýringum kæranda á kæruefni málsins. Var því svarað til að annars vegar væri kærð sú ákvörðun Rangárþings ytra „að taka enga ákvörðun“ en hins vegar sú ákvörðun Barna- og fjölskyldustofu að ráðast í óleyfisframkvæmdir.

Afgreiðsla umsóknar um byggingarleyfi og útgáfa þess er í höndum byggingarfulltrúa samkvæmt ákvæðum laga nr. 160/2010 um mannvirki, sbr. 2. mgr. 9. gr., 11. gr. og 13. gr. laganna. Slík ákvörðun er kæranleg til úrskurðarnefndarinnar skv. 59. gr. laganna. Fyrir liggur að með bréfi kæranda til úrskurðarnefndarinnar, dags. 17. nóvember 2025, var kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúa frá 27. september s.á. að gefa út byggingarleyfi til handa Barna- og fjölskyldustofu vegna þeirra framkvæmda sem um er deilt í máli þessu. Er það kærumál til meðferðar hjá nefndinni og er málsnúmer þess UUA2511047. Óleyfisframkvæmdir einar og sér verða hins vegar ekki kærðar til úrskurðarnefndarinnar enda hvíla þær ekki á ákvörðun stjórnvalds, sem tekin er á grundvelli laga. Að þessu virtu er í máli þessu ekki til að dreifa ákvörðun sem borin verður undir úrskurðarnefndina og verður kærumáli þessu af þeim sökum vísað frá nefndinni.

 Úrskurðarorð:

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.