Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

145/2025 Heiðarbrún og Stjörnusteinar

Árið 2025, þriðjudaginn 23. september, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. 145/2025, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar frá 18. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulag Heiðarbrúnar 2–8a og Stjörnusteina 7 á Stokkseyri.

 Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 20. september 2025, kærir eigandi, Heiðarbrún 8, Stokkseyri, þá ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar frá 18. júní 2025 að samþykkja deiliskipulag Heiðarbrúnar 2–8a og Stjörnusteina 7 á Stokkseyri. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi.

Málsatvik og rök: Á fundi skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Árborg 15. janúar 2025 var tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi Heiðarbrúnar 2–8a og Stjörnusteina 7 á Stokkseyri. Í fundargerð kemur fram að skipulagsnefnd hafi um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð þar sem þess sé kostur. Fram kom að markmið skipulagsins væri að samræma skilmála fyrir lóðirnar og skapa samfellda byggð með heildstæðri götumynd. Við gildistöku nýs deiliskipulags muni núgildandi deiliskipulagsáætlanir fyrir Heiðarbrún 6–6a og 8a falla úr gildi. Lagði nefndin til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og að skipulagsfulltrúa yrði falið að auglýsa hana í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Staðfesti bæjarstjórn þá afgreiðslu á fundi 5. febrúar 2025 og var tillagan auglýst til kynningar 13. s.m. með athugasemdafresti til 27. s.m. Bárust athugasemdir á kynningartíma og voru gerðar breytingar á tillögunni með hliðsjón af þeim. Á fundi skipulagsnefndar 11. júní s.á. var tillagan tekin fyrir og hún samþykkt. Á fundi bæjarstjórnar 18. s.m. var tillagan samþykkt og skipulagsfulltrúa falið að senda hana til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.

Niðurstaða: Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal senda Skipulagsstofnun deiliskipulag sem samþykkt hefur verið af sveitarstjórn og samantekt um málsmeðferð ásamt athugasemdum og umsögnum um þær innan sex mánaða frá því að frestur til athugasemda rann út. Að lokinni lögmætisathugun Skipulagsstofnunar skal sveitarstjórn birta auglýsingu um samþykkt deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda, en slík auglýsing er skilyrði gildistöku deiliskipulags og markar jafnframt upphaf eins mánaðar kærufrests til úrskurðar­nefndarinnar, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Umrædd deiliskipulagsáætlun er enn til meðferðar hjá Skipulagsstofnunar og hefur ekki verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Liggur því ekki fyrir ákvörðun sem bindur enda á mál í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem kæranleg er til úrskurðar­nefndarinnar. Verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni. 

Úrskurðarorð:

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.