Árið 2025, föstudaginn 10. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson settur varaformaður, Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. 113/2025, kæra á ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 25. júní 2025 um að synja umsókn um tímabundinn aukinn opnunartíma fyrir veitingastaðinn Skor að Kolagötu 1.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 20. júlí 2025, kærir Rollsinn ehf. þá ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 25. júní 2025 að synja umsókn um tímabundinn aukinn opnunartíma fyrir veitingastaðinn Skor að Kolagötu 1. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Jafnframt er þess krafist að málið verði sent til nýrrar meðferðar hjá heilbrigðiseftirlitinu og að úrskurðarnefndin árétti skyldur stjórnvaldsins til að framkvæma heildstæða rannsókn í málinu.
Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur 19. ágúst 2025.
Málavextir: Mál veitingastaðarins Skors á sér þó nokkra forsögu hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Hinn 29. mars 2023 kvað nefndin upp úrskurð í máli nr. 102/2022 þar sem felld var úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 5. ágúst 2022 um að gefa út starfsleyfi til 12 ára til að reka veitingastað í flokki II að Kolagötu 1 (áður Geirsgötu 2). Var niðurstaðan á því byggð að undirbúningi og rannsókn hinnar kærðu ákvörðunar hafi verið hagað með þeim hætti að ekki hafi verið uppfyllt skilyrði 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Hinn 31. mars 2023 var kæranda veitt tímabundið starfsleyfi til reksturs veitingastaðarins til þriggja mánaða á meðan brugðist væri við fyrrgreindri niðurstöðu nefndarinnar. Með úrskurði, uppkveðnum 22. maí s.á. í máli nr. 42/2023, hafnaði nefndin kröfu um að hið tímabundna starfsleyfi yrði fellt úr gildi þar sem fallist var á með heilbrigðiseftirlitinu að til þess að rannsaka málið með fullnægjandi hætti hafi reynst nauðsynlegt að gefa út tímabundið starfsleyfi. Fram kom í úrskurðinum að niðurstöður hávaðamælinga yrðu grundvöllur ákvörðunar um það hvort starfsleyfi til veitingastaðarins yrði gefið út til lengri tíma eða ekki.
Í apríl 2023 voru gerðar hljóðmælingar í íbúð 201 að Kolagötu 1 með síritandi hljóðmæli og stóðu þær yfir í þrjár vikur. Voru niðurstöður mælinganna þær að aðstæður í íbúðinni væru metnar heilsuspillandi. Hinn 31. maí s.á. barst Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur úrbótaáætlun frá kæranda sem sótti í framhaldinu um tímabundið starfsleyfi þar sem fyrir lá að ekki næðist að ljúka úrbótum áður en gildistími tímabundins starfsleyfis staðarins frá 31. mars 2023 rynni út í lok júní s.á. Heilbrigðiseftirlitið varð við beiðni hans og veitti veitingastaðnum tímabundið starfsleyfi 27. júní s.á. til þriggja mánaða með takmörkun á hljóðstigi við 75 dB(A) í miðrými staðarins og takmarkaði opnunartíma til kl. 22:00 alla daga vikunnar. Var kærandi upplýstur um að takmörkunum yrði ekki aflétt fyrr en hægt væri að staðfesta að úrbætur hefðu skilað tilætluðum árangri. Hinn 26. júlí s.á. lýsti kærandi því yfir að úrbótum væri lokið og óskaði eftir að heilbrigðiseftirlitið kæmi til hljóðmælinga til að staðfesta úrbæturnar. Heilbrigðiseftirlitið hafði samband við eigendur íbúða 201 og 205 að Kolagötu 1, en íbúð 201 var komin í útleigu og eigendur íbúðar 205 voru í sumarleyfi. Fór Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur 30. ágúst 2023 í eftirlit á veitingastaðnum og kannaði úrbætur á hljóðvist. Í eftirlitsskýrslu kemur fram að teppi séu komin undir bjórkúta og að úrbætur hafi verið gerðar samkvæmt ráðleggingum hljóðsérfræðings staðarins, en frágangur í lofti staðarins væri óbreyttur að sjá. Settur hafi verið upp síritandi hljóðmælir í miðrými staðarins.
Heilbrigðiseftirlitið fór til hljóðmælinga og skynmats í íbúðum 201 og 205 að Kolagötu 1 hinn 15. september 2023. Sýndu niðurstöður þeirra mælinga að þær úrbætur sem kærandi hafði ráðist í uppfylltu ekki kröfur um hljóðeinangrun milli hæða. Hljóðstig veitingastaðarins jókst með auknum gestafjölda og hljóðmælir staðsettur í meginrými staðarins sýndi að hljóðstig fór almennt vaxandi eftir því sem leið á kvöldið. Var ónæði og hávaði metinn heilsuspillandi í báðum íbúðum. Í íbúð 201 mátti greina söng gesta í karókíherbergi og í íbúð sem staðsett er yfir miðrými staðarins mátti heyra hróp, köll og skelli frá starfseminni.
Kærandi sótti um starfsleyfi fyrir rekstur veitingastaðarins til 12 ára hinn 21. september 2023 og 26. s.m. tók heilbrigðiseftirlitið ákvörðun um að framlengja gildistíma tímabundins starfsleyfis frá 30. júní til 15. nóvember s.á. með sömu skilyrðum og takmörkunum á opnunartíma, þ.e. til kl. 22:00 sunnudaga til fimmtudaga og til kl. 23:00 föstudaga, laugardaga og aðfaranætur frídaga. Afgreiðslu fyrirliggjandi umsóknar var frestað þar sem hljóðmælingar hefðu ekki farið fram í íbúð 205. Hljóðmælingar og skynmat fóru fram í íbúðinni 29. september 2023 og var unnin hljóðskýrsla út frá gögnum sem safnað var við heimsóknir í íbúðir 201 og 205. Helstu niðurstöður voru þær að enn væri ónæði í íbúðunum. Í íbúð 201 mátti heyra söng gesta í karókíherbergi og í báðum íbúðunum heyrðust hróp og köll frá gestum.
Hinn 14. nóvember 2023 sendi heilbrigðiseftirlitið tölvupóst á íbúðaeigendur og húsfélag Kolagötu 1 varðandi fyrirhugaða veitingu starfsleyfis fyrir veitingastaðinn til 12 ára með þeim takmörkunum að opnunartími væri til kl. 22:00 sunnudaga til fimmtudaga og til kl. 23:00 föstudaga, laugardaga og aðfaranætur frídaga. Ekki bárust athugasemdir frá íbúum Kolagötu 1 vegna hinnar fyrirhuguðu ákvörðunar. Frá apríl 2023 til 15. nóvember s.á. bárust 45 kvartanir frá íbúum hússins vegna starfseminnar. Á afgreiðslufundi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur 15. nóvember s.á. var samþykkt að veita kæranda starfsleyfi fyrir veitingastaðinn til 12 ára með starfsleyfisskilyrðum fyrir samkomustaði og sértækum starfsleyfisskilyrðum. Til að takmarka ónæði voru gerðar kröfur um að jafngildishljóðstig tónlistar í miðrými skyldi ekki fara yfir 80 dB(A) og að hljóðkerfi skyldi vera með búnað til að fyrirbyggja að það gæti gefið af sér hærra hljóðstig en leyfilegt væri. Notkun karókíherbergis staðarins var ekki lengur heimil.
Hinn 10. janúar 2024 sótti kærandi um að opnunartími veitingastaðarins yrði til samræmis við heimilaðan opnunartíma skipulagsyfirvalda á svæðinu, þ.e. til kl. 23:00 alla virka daga og til kl. 01:00 um helgar. Kom fram í umsókninni að ráðist hefði verið í umfangsmiklar hljóðeinangrandi aðgerðir á staðnum og að áfram yrði ekki boðið upp á karókí. Heilbrigðiseftirlitið fór í sérstakt eftirlit á veitingastaðnum 14. febrúar s.á. að beiðni kæranda til að taka út þær úrbætur sem lýst var í umsókn um breytingu á starfsleyfi staðarins. Í eftirlitsskýrslu er því lýst að úrbætur hafi verið gerðar á hljóðeinangrun í miðrými staðarins, sérstaklega undir íbúðum með hljóðeinangrandi ísogsplötum. Einnig hafi verið gerðar úrbætur á loftræsingu og hljóðkerfi í sérherbergi, en úrbótum væri ekki að fullu lokið.
Á afgreiðslufundi heilbrigðiseftirlitsins 27. febrúar 2024 var samþykkt að aflétta takmörkunum að hluta og heimila opnunartíma veitingastaðarins til kl. 23:00 sunnudaga til fimmtudaga og til kl. 01:00 aðfaranætur laugardaga, sunnudaga og frídaga, sem er sami opnunartími og heimilaður er í skipulagi Reykjavíkurborgar fyrir veitingastaði á þessu svæði. Til að lágmarka ónæði í nærliggjandi íbúðabyggð voru eftirfarandi takmarkanir settar á starfsemi staðarins: 60 mínútna jafngildishljóðstig tónlistar í miðrými skyldi ekki fara yfir 80 dB(A) og hljóðkerfi skyldi vera með búnað til að fyrirbyggja að hægt sé að spila hærra hljóðstig en leyfilegt er. Opnunartími sérherbergis var takmarkaður til kl. 00:00 aðfaranætur laugardaga, sunnudaga og frídaga. Ástundun pílukasts á staðnum skyldi miðast við sömu tímamörk. Karókístarfsemi í sérherbergi staðarins var ekki leyfð. Önnur starfsemi var heimiluð með takmörkunum á opnunartíma sérherbergis. Íbúi að Kolagötu 1 kærði þá ákvörðun til úrskurðarnefndarinnar sem felldi hana úr gildi með úrskurði, uppkveðnum 24. júlí 2024 í máli nr. 57/2025, á þeim grundvelli að ekki hafi verið með viðhlítandi hætti gengið úr skugga um hvort hávaði í íbúð kæranda væri innan þeirra marka sem sett eru í lögum og reglugerð nr. 724/2008 um hávaða. Hafi rannsókn máls við undirbúning hinnar kærðu ákvörðunar að því leyti verið ábótavant.
Hinn 9. september 2024 barst heilbrigðiseftirlitinu umsókn um breytingu á starfsleyfisskilyrðum veitingastaðarins að því er varðaði aukinn opnunartíma. Sótt var um opnun til kl. 23:00 alla virka daga og til 01:00 um helgar, að undanskildu einkaherbergi sem loka skyldi kl. 22:00 virka daga og kl. 23:00 um helgar. Til vara var sótt um opnun til kl. 23:00 alla virka daga og til 00:00 um helgar, að undanskildu einkaherbergi sem skyldi loka kl. 22:00 virka daga og kl. 23:00 um helgar. Umsókninni var hafnað 10. janúar 2025 m.a. með vísan til hljóðmælinga sem gerðar hafi verið í kjölfar úrskurðar nefndarinnar í máli nr. 102/2022. Þær mælingar hafi sýnt að ekki hafi verið hægt að meta raunveruleg áhrif á ónæði frá staðnum fyrr en að loknum mælingum í íbúð á 2. hæð hússins sem staðið hafi yfir í þrjár vikur í apríl 2023 og mælingum og skynmati í september s.á. Þær mælingar hafi sýnt að aðstæður voru metnar óviðunandi. Engar sambærilegar mælingar eða skynmat hafi farið fram eftir það sem stutt geti ákvörðun um lengri opnunartíma. Kærandi þessa máls kærði þá ákvörðun til úrskurðarnefndarinnar sem með úrskurði 13. maí 2025 í máli nr. 24/2025 hafnaði kröfu um ógildingu hennar. Taldi nefndin að þótt finna mætti að rökstuðningi ákvörðunarinnar yrði þó ekki talin ástæða til að raska gildi hennar.
Hinn 3. júní 2025 barst Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur að nýju umsókn kæranda um tímabundna rýmkun á opnunartíma umrædds veitingastaðar. Sótt var um opnun til kl. 23:00 alla virka daga og til kl. 00:00 föstudaga og laugardaga. Óskað var eftir að rýmkunin gilti fram til 15. janúar 2026. Með bréfi, dags. 25. júní 2025, hafnaði heilbrigðiseftirlitið beiðninni. Var þar vísað til þess að í úrskurði úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 57/2024 hafi komið fram að samkvæmt hljóðskýrslu vegna hljóðmælinga og skynmats í september 2023 hafi aðstæður í íbúðum á 2. hæð Kolagötu 1, þ.e. íbúðum 201 og 205, verið metnar óviðunandi. Jafnframt hafi nefndin vísað til þess að engar sambærilegar hljóðmælingar eða skynmat hafi farið fram sem stutt gæti þá ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins að lengja opnunartíma staðarins. Þá kemur fram í bréfi heilbrigðiseftirlitsins að með því hafi úrskurðarnefndin lagt skýrar línur um hvað þurfi að liggja til grundvallar rýmri opnunartíma, n.t.t. að lagt yrði að nýju mat á ónæði frá starfseminni með því að endurtaka það skynmat og hljóðmælingar úr íbúðum 201 og 205 sem hafi legið til grundvallar takmörkun á opnunartíma staðarins. Því næst sagði:
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur óskað eftir því við íbúa á hæðum fyrir ofan Skor að fá aðgengi til hljóðmælinga en því hefur annað hvort verið hafnað eða ekki svarað. Ekki hefur því verið hægt að meta raunverulegt ónæði frá staðnum. Kvartanir halda áfram að berast frá íbúum í íbúðum 205 og 301 vegna ónæðis frá staðnum. Kvartað er undan hávaða frá gestum, hávaða frá tónlist, kútahljóðum og steikingarlykt frá staðnum. Íbúar hafa fengið sendan úrskurð ÚUA nr. 24/2025 og eru því upplýstir um hvert synjun um aðgang að íbúðum til hljóðmælinga getur leitt.
Var niðurstaða heilbrigðiseftirlitsins sú að hafna umsókn kæranda um rýmri opnunartíma veitingastaðarins Skors. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu.
Málsrök kæranda: Kærandi telur að rökstuðningur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir synjun umsóknar kæranda um rýmri opnunartíma sé eins og áður byggður á hljóðmælingu frá árinu 2023. Í fyrri málum hjá nefndinni hafi kærandi rakið að sú mæling hafi verið illa framkvæmd og ekki fylgt stöðlum. Frá þeim tíma sem sú mæling hafi verið gerð, sem ákvörðunin byggi á, hafi verið lagst í framkvæmdir til þess að bæta hljóðvist á staðnum. Meðal annars hafi verið komið fyrir hljóðísogsplötum á stærstan flöt alrýmis, box í box lausn smíðuð í píluherbergi framan við einkaherbergi, allt flot slitið frá veggjum, einangrun sett í loftræstingu í einkaherbergi og tvöfalt gler sett í einkaherbergi. Þær framkvæmdir hafi verið sagðar fullnægjandi af heilbrigðiseftirlitinu þegar kæranda hafi verið veitt leyfi með hefðbundnum opnunartíma árið 2024. Nágrönnum hafi verið boðið að taka þátt í hljóðmælingum en hafnað því og hefðbundið leyfi því gefið út í janúar 2024. Úrskurðarnefndin hafi ógilt þá ákvörðun í júlí s.á og sé kærandi á sama stað ári síðar. Síðustu leyfisumsókn hafi verið hafnað af heilbrigðiseftirlitinu 25. júní 2025 á grundvelli sömu hljóðmælingar frá árinu 2023 og því að nágrannar neiti enn aðgangi að íbúðum fyrir hljóðmælingar. Þrátt fyrir það segi eftirlitið í svarbréfi sínu að íbúar hafi verið upplýstir um hvert synjun um aðgang að íbúðum til hljóðmælinga geti leitt. Það komi mjög skýrt fram í seinasta úrskurði nefndarinnar að heilbrigðiseftirlitið hafi enga aðra kosti en að veita leyfi ef mælingum eftir úrbætur sé stöðugt neitað.
Málsrök Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Í umsögn stjórnvaldsins eru raktar niðurstöður úrskurðarnefndarinnar í málum nr. 102/2022, 24/2025 og 57/2025. Ekki hafi verið að sjá af umsókn kæranda að frekari úrbætur hafi átt sér stað í húsnæðinu frá því að úttekt heilbrigðiseftirlitsins á hljóðvistarúrbótum í húsnæði veitingastaðarins Skors hafi verið framkvæmd 7. janúar 2025. Úttektin hafi staðfest að settar hafi verið upp einangrunarplötur í hluta lofts Kolagötumegin, fyrir neðan íbúð 202 og við pílubása í nánd við íbúðina sem og í aðalrými staðarins. Byrjað hafi verið á að klæða loftið með umræddum plötum fyrir umsókn um rýmkaðan opnunartíma 10. janúar 2024 og sé því um að ræða framhald af þeim aðgerðum. Samkvæmt eftirlitsskýrslu þeki loftplöturnar nú stærra svæði loftsins en enn sé loftið ekki klætt að fullu. Í eftirlitsskýrslu heilbrigðiseftirlitsins dags. 14. febrúar 2024, komi einnig fram að bæta þurfi frágang í kringum lagnir, því hljóð berist gegnum öll göt á hljóðeinangrun. Við eftirlit 7. janúar 2025 hafi verið staðfest að frágangur í kringum rör væri óbreyttur frá 14. febrúar 2024. Sé frágangi í kringum rör og lagnir því enn ábótavant.
Í eftirliti 7. janúar 2025 hafi aðrar ráðstafanir sem kærandi telji að bæti hljóðvist verið staðfestar. Þannig hafi loftræstitúðu verið komið fyrir á op í lofti fyrir framan sérherbergi og settir hafi verið þrír hljóðdempandi hringir og bylgjulaga svampmillilag á vegg milli pílubása fyrir framan sérherbergi. Jafnframt hafi rekstraraðili tiltekið að nýtt lag hafi verið sett á vegg sem eigi að hafa hljóðdempandi áhrif. Gluggatjöld hafi verið til staðar en hafi ávallt verið frádregin við eftirlitsheimsóknir. Hafi rekstraraðila verið bent á að gluggatjöldin þurfi að vera dregin fyrir til þess að hafa fulla virkni. Enn fremur hafi engin gögn fylgt umsókninni sem styðji við fullyrðingar um hljóðdempandi eiginleika umræddra úrbóta. Við skynmat hafi hvorki verið að sjá né heyra að hljóðdempandi hringirnir hefðu umtalsverð áhrif í að bæta hljóðvistina. Veggur í sérherbergi hafi verið óbreyttur frá fyrra eftirliti og engar hljóðdempandi lausnir sé að finna á þeim vegg. Í skýrslu vegna eftirlitsins sé einnig getið um fleiri frávik. Þannig hafi verið óskað eftir því í eftirliti 25. maí 2024 að skilað yrði úrbótaáætlun varðandi ómtíma í rými fyrir framan sérherbergi og hafi frestur til þess verið til 9. ágúst s.á. Sú úrbótaáætlun hafi enn ekki borist. Í eftirliti frá 14. febrúar 2024 hafi kærandi upplýst heilbrigðiseftirlitið um breytingar á hljóðkerfi inni í sérherbergi. Litlir hátalarar hafi verið settir upp og til stæði að taka niður stærri hátalarana í rýminu. Í eftirliti 7. janúar 2025 hafi stærri hátalararnir enn verið uppi og í sambandi. Enn fremur sé hljóðgildra í sérherbergi ekki virk þar sem önnur af tveimur hurðum herbergisins hafi verið fjarlægð. Hinn 29. mars 2025 hafi heilbrigðisfulltrúar farið í eftirlit vegna kvörtunar um hávaða og hafi þá verið staðfest að frekari úrbætur hefðu ekki átt sér stað eftir úttektina í janúar s.á.
Íbúar í fjölbýlishúsinu að Kolagötu 1 hafi verið upplýstir um að synjun um aðgang að íbúðum til hljóðmælinga geti leitt til þess að ákvörðun verði tekin um opnunartíma veitingastaðarins á grundvelli ófullnægjandi gagna. Þrátt fyrir að áður framlögð gögn og úttektir heilbrigðiseftirlitsins sýni að gripið hafi verið til ráðstafana til að bæta hljóðvist veitingastaðarins þá geti þau gögn ein og sér ekki sýnt fram á að þær bæti hljóðvist staðarins þannig að komið sé í veg fyrir að íbúar hússins verði fyrir ónæði vegna starfseminnar, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 24/2025. Kærandi hafi ekki orðið að fullu við tilmælum um úrbætur sem þeim hafi verið leiðbeint um. Jafnframt hafi kvartanir vegna hávaða og steikingarbrælu haldið áfram að berast heilbrigðiseftirlitinu. Sé það því mat eftirlitsins að úrbætur þær sem kærandi hafi ráðist í séu ófullnægjandi til að tryggja að starfsemi veitingastaðarins valdi ekki óviðunandi grenndaráhrifum.
Viðbótarathugasemdir kæranda: Kærandi vísar til þess að engin eftirlitsskýrsla frá 25. maí 2023 hafi verið send til hans og sé því gert ráð fyrir að átt sé við skýrslu frá apríl s.á. Í þeirri skýrslu hafi verið óskað eftir viðbrögðum við athugasemdum um hljóð, lykt o.fl., en ekki hafi sérstaklega verið óskað eftir úrbótum vegna ómtíma. Þeirri skýrslu hafi verið svarað af hálfu kæranda 31. maí 2023. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi svarað því með frekari spurningum og samþykkt aðgerðaáætlun um úrbætur. Í framhaldi af því hafi verið farið í framkvæmdir ásamt húseiganda sem kostað hafi á bilinu 10–15 milljónir kr. Viðurkenndar hljóðmælingar af verkfræðistofu með viðurkenndum búnaði hafi verið framkvæmdar fyrir og eftir aðgerðir og verkfræðistofa fengin til að hanna breytingar á veggjum og lofti í umræddu rými. Hljóðverkfræðingur hafi verið fenginn til þess að fara yfir athugasemdir sem gerðar hafi verið eftir reglubundið eftirlit heilbrigðiseftirlitsins 26. apríl 2023 og svari hann þeim athugasemdum sem þar hafi komið fram.
Hvergi í þeirri skýrslu sé óskað eftir „úrbótum um bættan ómtíma“ en starfsmaður kæranda sem hafi verið viðstaddur úttekt heilbrigðiseftirlitsins muni vissulega eftir samtali við fulltrúa á staðnum þar sem þetta hafi verið nefnt. Ómtími hafi verið bættur í rýminu eftir það eins og margoft hafi komið fram í samskiptum síðan þá. Ull hafi verið sett í loftin og hljóðdempandi lausnir settar á veggi. Kærandi hafi sent formlega ómtímamælingu til heilbrigðiseftirlitsins 5. ágúst 2022 að beiðni þess. Þar komi fram að ómtími sé ásættanlegur, þ.e. 0.5–1s sem oft sé notað sem viðmið fyrir skrifstofur og skólastofur. Farið hafi verið í aðgerðir til að bæta ómtíma og hafi eftirlitið ekki tekið eftir því. Í eftirlitsskýrslu frá 29. mars 2025 komi fram að ekkert ónæði hafi verið frá staðnum en að ómtími væri slæmur, en þar hafi verið um að ræða skynmat en ekki mælingu. Eins komi fram að engar auknar aðgerðir hafi verið gerðar síðan í heimsókn í janúar. Kærandi ítreki að ekki standi til að gera neinar frekari aðgerðir. Málsrök kæru snúi að því að heilbrigðiseftirlitið hafi ekki framkvæmt neinar mælingar eftir að kærandi hafi gert úrbætur.
Niðurstaða: Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 25. júní 2025 að synja umsókn um tímabundinn aukinn opnunartíma fyrir veitingastaðinn Skor að Kolagötu 1. Kæra barst innan kærufrests og er kæruheimild í 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Hlutverk úrskurðarnefndarinnar er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og í ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði, sbr. 1. gr. laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011. Í samræmi við það tekur úrskurðarnefndin lögmæti kærðrar ákvörðunar til endurskoðunar en tekur allajafna ekki nýja ákvörðun í málinu eða leggur fyrir stjórnvöld að aðhafast með tilteknum hætti. Verður því eingöngu tekin til meðferðar sú ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins frá 25. júní 2025 að synja umsókn um tímabundinn aukinn opnunartíma fyrir veitingastaðinn.
Í 1. gr. laga nr. 7/1998 kemur fram að markmið laganna sé að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi. Til að stuðla að framkvæmd mengunarvarnareftirlits er í 5. gr. laganna kveðið á um heimild til að setja reglugerð um hávaða og titring þar sem fram eiga að koma viðmiðunarmörk fyrir leyfilegan hávaða og titring með hliðsjón af umhverfishávaða, sbr. 15. tl. greinarinnar. Reglugerð nr. 724/2008 um hávaða er sett með stoð í þeirri lagaheimild. Í 6. gr. laga nr. 7/1998 er kveðið á um að allur atvinnurekstur, sem talinn er í viðaukum I, II og IV við lögin, skuli hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfisstofnun eða heilbrigðisnefndir gefa út. Segir jafnframt í greininni að starfsleyfi skuli veitt starfsemi uppfylli hún þær kröfur sem til hennar eru gerðar samkvæmt lögunum og reglugerðum settum samkvæmt þeim að teknu tilliti til annarrar löggjafar. Er og tekið fram að allur atvinnurekstur sem sótt sé um starfsleyfi fyrir skuli vera í samræmi við skipulag. Í 13. gr. laga nr. 7/1998 er síðan mælt svo fyrir um að heilbrigðisnefndir beri ábyrgð á því að ákvæðum laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim sé fylgt eftir.
Forráðamönnum fyrirtækja og stofnana er skylt að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir heilsuspillandi hávaða og ónæði af völdum hávaða, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 724/2008. Getur þeim eftir atvikum verið gert að sýna fram á það með mælingum að hávaði frá starfsemi þeirra sé innan þeirra marka sem sett eru í skipulagi. Í 11. gr. reglugerðarinnar er auk þessa mælt fyrir um að heilbrigðisnefndir skuli eftir þörfum framkvæma eða láta framkvæma eftirlitsmælingar á hávaða, sem tilefni getur verið til vegna rökstuddra ábendinga. Verður samkvæmt þessu að leggja mat á það eftir bestu fáanlegu gögnum hversu líklegt sé að hávaði frá hinni umdeildu starfsemi verði innan þeirra viðmiðunarmarka fyrir hávaða frá atvinnustarfsemi, þ.e. fyrir íbúðarhúsnæði á verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum, sem koma fram í III. töflu í viðauka við reglugerð nr. 724/2008.
Að virtum sjónarmiðum kæranda og í ljósi forsögu málsins telur úrskurðarnefndin tilefni til þess að árétta það sem fram kom í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 24/2025 að niðurstöður mælinga eins og þeirra sem fóru fram árið 2023 geti haft verulega þýðingu við mat á grenndaráhrifum. Í ljósi þess að íbúar í fjölbýlishúsinu þar sem veitingastaðurinn Skor er staðsettur höfðu ekki fallist á að mælingar færu fram í íbúðum þeirra var því beint til heilbrigðiseftirlits að við slíkar aðstæður væri rétt að upplýsa hlutaðeigandi með skýrum hætti um að synjun um að veita aðgang að íbúðum til hljóðmælinga geti leitt til þess að ófullkomnar upplýsingar verði lagðar til grundvallar við mat á aðstæðum. Íbúar fjölbýlishússins hafa nú verið upplýstir um framangreint, en eins og fram kom í niðurstöðu áðurnefnds úrskurðar hefur þetta þó einkum þýðingu ef talið verður að áður hafi verið gerðar fullnægjandi úrbætur á hljóðeinangrun eða hljóðvist.
Eins og fram kemur í eftirlitsskýrslu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 14. febrúar 2024 þarf að mati stjórnvaldsins að bæta frágang í kringum rör. Samkvæmt skýrslu vegna eftirlits 7. janúar 2025 var frágangur í kringum rör á þeim tíma enn ófrágenginn. Í þeirri skýrslu er frekari frávikum lýst, s.s. að stærri hátalarar séu enn til staðar í sérherbergi þrátt fyrir að kærandi hafi í eftirliti í febrúar 2024 upplýst að til stæði að fjarlægja þá og að hljóðgildra í sérherbergi sé ekki virk þar sem önnur hurðin af tvöfaldri hurð hafi verið fjarlægð. Þá kemur fram í skýrslu vegna eftirlits 29. mars 2025 að ekki virðist sem unnið hafi verið að frekari úrbótum á hljóðvist frá því í síðustu eftirlitsferð í janúar. Að mati úrskurðarnefndarinnar hefur kærandi ekki sýnt fram á að hann hafi gripið til þeirra úrbóta sem heilbrigðiseftirlitið telur þörf á. Að því virtu verður fallist á það mat Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að þar sem kærandi hafi ekki að fullu orðið við þeim tilmælum sé ekki hægt að líta svo á að hljóðeinangrun eða hljóðvist veitingastaðarins sé fullnægjandi þannig að réttlætt geti rýmri opnunartíma. Þó verður að telja að þær forsendur hefðu mátt koma skýrar fram í bréfi heilbrigðiseftirlitsins frá 25. júní 2025 þegar kæranda var tilkynnt um þá ákvörðun að synja umsókn hans.
Með hliðsjón af framangreindu verður kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar hafnað.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu um að ógilda þá ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 25. júní 2025 að synja umsókn um tímabundinn aukinn opnunartíma fyrir veitingastaðinn Skor að Kolagötu 1.
