Árið 2025, föstudaginn 25. júlí, tók Ómar Stefánsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fyrir með heimild í 3. mgr. 3. gr., sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 130/2011:
Mál nr. 112/2025, kæra á ákvörðun bæjarráðs Kópavogsbæjar frá 17. júlí 2025 um að heimila endurupptöku stjórnsýslumáls sem áður hafði lokið með ákvörðun bæjarstjórnar hinn 12. mars 2024.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 20. júlí 2025, kærir íbúi í Foldasmára, Kópavogi, þá ákvörðun bæjarráðs Kópavogsbæjar frá 17. s.m., að heimila endurupptöku stjórnsýslumáls sem áður hafði lokið með ákvörðun bæjarstjórnar hinn 12. mars 2024. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og réttaráhrifum hennar frestað. Þykir málið nú nægilega upplýst til að það verði tekið til endanlegs úrskurðar og verður því ekki tekin afstaða til kröfu um frestun réttaráhrifa ákvörðunarinnar.
Málsatvik og rök: Bæjarstjórn Kópavogsbæjar hafnaði hinn 12. mars 2024 tillögu lóðarhafa Nónsmára 1–17 að breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Var sú ákvörðun ekki kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Á fundi bæjarstjórnar 24. júní 2025 var skráð í fundargerð að samþykkt hefði verið tillaga að sumarleyfi bæjarstjórnar og að bæjarráði væri falið umboð bæjarstjórnar á sumarleyfistíma. Hinn 17. júlí s.á. samþykkti bæjarráð heimild fyrir endurupptöku greinds stjórnsýslumáls.
Af hálfu kæranda eru m.a. gerðar athugasemdir við málsmeðferð og lagatúlkun bæjaryfirvalda vegna samþykkis á endurupptöku málsins. Telur hann sig eiga grenndarhagsmuna að gæta af því að ekki verði af þeirri breytingu á deiliskipulagi sem bæjarstjórn hafnaði 12. mars 2024.
Niðurstaða: Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun bæjarráðs Kópavogsbæjar frá 17. júlí 2025 að heimila endurupptöku stjórnsýslumáls umsækjanda um breytingu á deiliskipulagi sem synjað hafði verið með ákvörðun bæjarstjórnar um einu og hálfu ári áður.
Samkvæmt 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er aðila máls heimilt að kæra stjórnvaldsákvörðun til æðra stjórnvalds til þess að fá hana fellda úr gildi eða henni breytt nema annað leiði af lögum eða venju. Í 2. mgr. ákvæðisins er hins vegar tekið fram að ákvörðun sem ekki bindi enda á mál verði ekki kærð fyrr en málið hafi verið til lykta leitt.
Umrædd ákvörðun felur í sér að mál verði tekið til meðferðar á nýjan leik en felur ekki í sér ákvörðun um lyktir máls, svo sem um breytt skipulag. Bindur hún því ekki enda á mál í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga. Þegar af þeirri ástæðu verður kærumáli þessu vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð:
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
