Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

111/2025 Heiðarbrún og Stjörnusteinar

Árið 2025, mánudaginn 1. september, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. 111/2025, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar frá 18. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulag Heiðarbrúnar 2–8a og Stjörnusteina 7 á Stokkseyri.

 Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 20. júlí 2025, kærir A, Heiðarbrún 8, Stokkseyri, þá ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar frá 18. júní 2025 að samþykkja deiliskipulag Heiðarbrúnar 2–8a og Stjörnusteina 7 á Stokkseyri. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi.

Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Sveitarfélaginu Árborg 1. september 2025.

Málsatvik og rök: Á fundi skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Árborg 15. janúar 2025 var tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi Heiðarbrúnar 2–8a og Stjörnusteina 7 á Stokkseyri. Í fundargerð kemur fram að skipulagsnefnd hafi um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð þar sem þess sé kostur. Það sé ávinningur að byggja hús á lóðum innan um önnur íbúðarhús. Í tillögunni kom fram að markmið skipulagsins væri að samræma skilmála fyrir lóðirnar og skapa samfellda byggð með heildstæðri götumynd. Fyrir séu í gildi deiliskipulagsáætlanir fyrir Heiðarbrún 6–6a og 8a sem muni falla úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags. Lagði nefndin til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og að skipulagsfulltrúa yrði falið að auglýsa hana í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Staðfesti bæjarstjórn þá afgreiðslu á fundi 5. febrúar 2025 og var tillagan auglýst til kynningar 13. s.m. með athugasemdafresti til 27. s.m. Bárust athugasemdir á kynningartíma og voru gerðar breytingar á tillögunni með hliðsjón af þeim. Á fundi skipulagsnefndar 11. júní s.á. var tillagan tekin fyrir og hún samþykkt. Á fundi bæjarstjórnar 18. s.m. var tillagan samþykkt og skipulagsfulltrúa falið að senda hana til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.

Niðurstaða: Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal senda Skipulagsstofnun deiliskipulag sem samþykkt hefur verið af sveitarstjórn og samantekt um málsmeðferð ásamt athugasemdum og umsögnum um þær innan sex mánaða frá því að frestur til athugasemda rann út. Að lokinni lögmætisathugun Skipulagsstofnunar skal sveitarstjórn birta auglýsingu um samþykkt deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda, en slík auglýsing er skilyrði gildistöku deiliskipulags og markar jafnframt upphaf eins mánaðar kærufrests til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Umrædd deiliskipulagsáætlun er enn til meðferðar hjá Skipulagsstofnunar og hefur ekki verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Liggur því ekki fyrir ákvörðun sem bindur enda á mál í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar. Verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni. 

Úrskurðarorð:

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.