Árið 2025, mánudaginn 11. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. 110/2025, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Seltjarnarnesbæjar frá 19. júní 2025 um að samþykkja byggingaráform að Hofgörðum 16, Seltjarnarnesi.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða
úrskurður
um kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda:
Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 18. júlí 2025, er barst nefndinni sama dag, kæra eigendur fasteigna að Melabraut 40 og 42 og Hofgarða 17, 18, 19 og 21, þá ákvörðun byggingarfulltrúa Seltjarnarnesbæjar frá 19. júní 2025 um að samþykkja byggingaráform að Hofgörðum 16, Seltjarnarnesi. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Verður nú tekin afstaða til framkominnar stöðvunarkröfu, sbr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Málsatvik og rök: Samkvæmt deiliskipulagi Bollagarða og Hofgarða frá árinu 2015 er lóð nr. 16 að Hofgörðum á Seltjarnesi eina óbyggða lóðin á skipulagssvæðinu sem samanstendur af rað- og einbýlishúsum. Byggingarfulltrúi Seltjarnarnesbæjar samþykkti byggingaráform vegna umræddrar lóðar 19. júní 2025 með áritun á aðaluppdrætti og gaf samtímis út byggingarleyfi. Fela hin samþykktu áform í sér að á lóðinni verði byggt 337,7 m2 einbýlishús á tveimur hæðum.
Kærendur telja hin umdeildu byggingaráform ekki standast kröfur laga um mannvirki nr. 160/2010 og ekki samræmast deiliskipulagi. Framkvæmdir séu þegar hafnar á grundvelli ólögmæts byggingarleyfis og séu þær ekki afturkræfar nema með miklu tjóni fyrir lóðarhafa.
Af hálfu bæjaryfirvalda er vísað til þess að ekki hafi verið færð fram nein haldbær rök fyrir því að rétt sé að stöðva yfirstandandi framkvæmdir.
Byggingarleyfishafar telja ljóst að verði fallist á kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda muni það valda þeim verulegu fjárhagslegu tjóni og raska allri framkvæmdaáætlun.
Niðurstaða: Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda séu þær hafnar eða yfirvofandi, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Þá getur úrskurðarnefndin að sama skapi frestað réttaráhrifum ákvörðunar komi fram krafa um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. 5. gr. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því.
Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan er sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa. Almennt mælir það á móti því að fallast á kröfu um stöðvun ef fleiri en einn aðili eru að máli og þeir eiga gagnstæðra hagsmuna að gæta. Einnig geta komið til álita þau tilvik þar sem kæruheimild verður í raun þýðingarlaus ef framkvæmdir eru ekki stöðvaðar, svo sem ef sú framkvæmd sem krafist er stöðvunar á er óafturkræf.
Að virtum framangreindum lagaákvæðum og þeim sjónarmiðum sem liggja að baki þeim verður ekki talin knýjandi þörf á að stöðva framkvæmdir á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður kröfu kærenda þess efnis því hafnað.
Rétt þykir þó að taka fram að framkvæmdaraðili ber áhættu af úrslitum kærumálsins kjósi hann að halda áfram framkvæmdum áður en niðurstaða þessa máls liggur fyrir.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda, til bráðabirgða, á grundvelli ákvörðunar byggingarfulltrúa Seltjarnarnesbæjar frá 19. júní 2025 um að samþykkja byggingaráform að Hofgörðum 16 Seltjarnarnesi.
