Árið 2025, föstudaginn 8. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. 106/2025, kæra á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 21. febrúar 2019 að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir Gufunes, áfangi 1, og ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 14. nóvember 2023 að samþykkja umsókn um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús að Jöfursbási 9c.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 18. júlí 2025, er barst nefndinni sama dag, kærir Húsfélagið Jöfursbás 11 þá ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 21. febrúar 2019 að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir Gufunes, áfangi 1. Einnig er kærð ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 14. nóvember 2023 að samþykkja umsókn um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús að Jöfursbási 9c. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Þykir málið nægilega upplýst til að það verði tekið til endanlegs úrskurðar og er því ekki tilefni til að taka afstöðu til stöðvunarkröfu kæranda.
Málsatvik og rök: Á fundi borgarráðs 21. febrúar 2019 var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga Gufuness. Tók deiliskipulagið gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda 1. mars s.á. Gerðar hafa verið tvær breytingar á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 9 við Jöfursbás sem tóku gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda, 12. ágúst 2021 og 7. október 2022. Umsókn um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús að Jöfursbási 9c var samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 14. nóvember 2023.
Kærandi bendir á að fjölbýlishúsið að Jöfursbási 9c sé fimm hæða fjölbýlishús sem sé einungis í 10 til 12 m fjarlægð frá Jöfursbási 11. Nokkrir íbúar hafi verið meðvitaðir um að frekari framkvæmdir væru fyrirhugaðar en hafi ekki gert sér grein fyrir því að ráðgert væri að svipta þá svo mikilli dagsbirtu. Þrátt fyrir að sex ár séu væru því að deiliskipulag hafi verið samþykkt og að byggingarleyfi hafi verið gefið út fyrir rúmlega einu og hálfu ári hafi framkvæmdir ekki hafist fyrr en í mars 2025. Íbúum hafi ekki verið kunnugt um þessar ráðagerðir fyrr en þá og þeir hafi ekki áttað sig á því hversu mikið nýbyggingin kæmi til með að skerða rétt þeirra. Það verði að játa þeim nokkuð svigrúm til að átta sig á aðstæðum og taka ákvörðun um næstu skref. Telja verði afsakanlegt að kæran hafi ekki borist fyrr auk þess sem mikilvægt sé að úr málinu verði leyst sbr. 1. og 2. tl. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Reykjavíkurborg vísar til þess að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að útgefið byggingarleyfi sé ekki í samræmi við gildandi skipulag. Þá sé kærufrestur fyrir hinar kærðu ákvarðanir liðinn sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sbr. einnig 27. og 28. gr. stjórnsýslulaga.
Leyfishafi vísar til þess að kærufrestur sé liðinn bæði vegna hins kærða deiliskipulags sem og byggingarleyfis. Framkvæmdir við Jöfursbás 9c séu hálfnaðar og í samræmi við upphaflegt deiliskipulag frá árinu 2019. Fyrstu íbúar að Jöfursbási 11 hafi flutt inn árið 2022, þremur árum eftir að deiliskipulag fyrir svæðið hafi verið samþykkt og auglýst. Þáverandi og núverandi eigendur hússins hafi mátt þekkja skipulag svæðisins og hvar stæði til að reisa fjölbýlishús í nágrenninu. Ekkert hafi breyst frá þeim tíma. Þær undantekningar sem fram komi í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga eigi ekki við um aðstæður sem þessar.
Niðurstaða: Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 er kærufrestur til nefndarinnar einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um þá ákvörðun sem kæra lýtur að. Sé um að ræða ákvörðun sem sætir opinberri birtingu telst kærufrestur frá fyrstu birtingu ákvörðunar skv. 2. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga. Auglýsing um gildistöku deiliskipulags þess sem deilt er um í máli þessu var birt í B-deild Stjórnartíðinda 21. febrúar 2019 og breytingar á því annars vegar 12. ágúst 2021 og 7. október 2022. Kæra í máli þessu barst úrskurðarnefndinni 18. júlí 2025 og var kærufrestur því löngu liðinn.
Hvað varðar byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 9c liggur fyrir að byggingarleyfi var samþykkt af hálfu byggingarfulltrúa 14. nóvember 2023. Í kæru kom fram að íbúum hafi verið kunnugt um framkvæmdir á lóðinni í mars 2025 og verður að telja að þá hafi þeim verið kunnugt eða mátt vera kunnugt um ákvörðun þá er kæra þessi lýtur að, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Eins og áður greinir barst kæra vegna byggingarleyfisins 18. júlí s.á. og var kærufrestur þá liðinn.
Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um áhrif þess ef kæra berst að liðnum kærufresti. Ber þá samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins að vísa kæru frá nema að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til efnismeðferðar. Tiltekið er í athugasemdum með 28. gr. í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum að við mat á því hvort skilyrði séu til að taka mál til meðferðar að loknum kærufresti þurfi að líta til þess hvort aðilar að málinu séu fleiri en einn og með andstæða hagsmuni. Sé svo sé rétt að taka mál einungis til kærumeðferðar að liðnum kærufresti í algjörum undantekningartilvikum. Skilyrði 28. gr. stjórnsýslulaga fyrir töku máls til efnismeðferðar að liðnum kærufresti þykja ekki uppfyllt í máli þessu. Verður máli þessu því vísað frá nefndinni.
Úrskurðarorð:
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
