Árið 2026, mánudaginn 27. apríl, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2604011, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
úrskurður
um kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa:
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. apríl 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi, Foldasmára 18 í Kópavogi, þá ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi.
- Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað á meðan málið sé til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
Málsatvik og rök
- Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs 2. febrúar 2026 var tekin fyrir tillaga lóðarhafa Nónsmára 1–17 um breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Í tillögunni fólst tilfærsla íbúða milli lóðanna og hækkun á leyfilegum hæðarfjölda íbúða á norðurhluta lóðanna úr tveimur í þrjár. Með því var gert ráð fyrir aukningu á leyfilegu byggingarmagni en sama fjölda íbúða. Samþykkti meirihluti ráðsins tillöguna með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 30. janúar s.á. Var sú afgreiðsla staðfest af meirihluta bæjarstjórnar á fundi hennar 10. febrúar s.á. og tók hún gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda 16. apríl 2026.
- Kærandi vísar til þess að málsmeðferð hinnar kærðu ákvörðunar hafi ekki verið í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga og að slíkt eigi að leiða til ógildingar hennar. Kærandi geri kröfu um að réttaráhrifum ákvörðunarinnar verði frestað þar sem skipulagsbreytingin feli í sér heimild til umfangsmikilla framkvæmda. Ljóst sé af málsatvikum að lóðarhafi hafi lagt mikla áherslu á hraða afgreiðslu málsins. Verði framkvæmdir hafnar á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar áður en skorið hafi verið úr um lögmæti hennar muni það valda kæranda óafturkræfu tjóni og gera leiðréttingu málsins þýðingarlausa. Því sé nauðsynlegt að fresta gildistöku þar til niðurstaða fáist í kærumálinu.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda séu þær hafnar eða yfirvofandi, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Þá getur úrskurðarnefndin að sama skapi frestað réttaráhrifum ákvörðunar komi fram krafa um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. nefndrar 5. gr. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan er sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um frestun réttaráhrifa.
- Mál þetta snýst um gildi deiliskipulagsákvörðunar. Gildistaka deiliskipulags felur ekki í sér heimildir til að hefja framkvæmdir heldur þarf til að koma sérstök stjórnvaldsákvörðun sem kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar, s.s. veiting byggingar- eða framkvæmdaleyfis, sbr. 11. og 13. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og 13., 14. og 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í kærumáli vegna greindra leyfisveitinga er eftir atvikum unnt að gera kröfu um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða skv. 5. gr. laga nr. 130/2011. Að jafnaði er því ekki tilefni til að beita heimild til frestunar réttaráhrifa í kærumálum er varða gildi deiliskipulagsákvarðana. Þegar litið er til fyrrgreindra lagaákvæða og eðlis deiliskipulagsákvarðana verður ekki séð að knýjandi nauðsyn sé á að fallast á kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa vegna hinnar kærðu deiliskipulagsbreytingar.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa á grundvelli hinnar kærðu deiliskipulagsákvörðunar.
