Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2604009 Skógafoss

Árið 2026, fimmtudaginn 30. apríl, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2604009, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings eystra frá 15. maí 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi úr landi Ytri Skóga, L163672. 

Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. apríl 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir A, Berjanesi, þá ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings eystra frá 15. maí 2025 að samþykkja breytingu á deiliskipulagi úr landi Ytri Skóga, L163672. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Málavextir og rök

  1. Hinn 13. febrúar 2025 samþykkti sveitarstjórn Rangárþings eystra að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ytri Skóga í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin tekur til 7,5 ha tjaldsvæðis auk mannvirkja, stækkunar á lóðum við Skógafossveg 2–7 auk þess sem ferðaþjónustulóðir við félagsheimili Fossbúðar eru felldar úr gildi og í stað þeirra gert ráð fyrir stækkun á núverandi bílastæði. Tillagan var kynnt fyrir lóðarhöfum, send til umsagnaraðila og auglýst á tímabilinu 17. febrúar 2025 til og með 3. apríl s.á. Var deiliskipulagsbreytingin samþykkt á fundi sveitarstjórnar 15. maí 2025 og tók hún gildi með auglýsingu í B- deild Stjórnartíðinda 23. október s.á.
  2. Kærandi vísar til þess að auglýsing um samþykki deiliskipulagsbreytingarinnar hafi verið birt hjá Rangárþingi eystra 19. nóvember 2025. Auglýsingin tilgreini ekki hvaða bílastæði eigi að stækka eða hvernig það verði gert. Engar athugasemdir hafi verið gerðar enda ekki ljóst um hvað málið hafi snúist af lestri auglýsingarinnar. Íbúar hafi þá ekki fengið tækifæri til að tjá hug sinn. Í ljós hafi komið að fyrirhugað sé að taka lóð sem fylgi félagsheimilinu Fossbúð og breyta í bílastæði. Þetta komi illa við íbúa fyrrum Austur-Eyjafjallahrepps sem hafi staðið að byggingu Fossbúðar.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 er kærufrestur til úrskurðarnefndarinnar einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um þá ákvörðun sem kæra lýtur að. Sé um að ræða ákvörðun sem sætir opinberri birtingu telst kærufrestur frá fyrstu birtingu ákvörðunar skv. 2. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga. Auglýsing um samþykkt hinnar kærðu deiliskipulagsbreytingu var birt í B-deild Stjórnartíðinda þann 23. október 2025. Kæra í máli þessu barst úrskurðarnefndinni 16. apríl 2026, en þá var kærufrestur liðinn.
  2. Í 28. gr. stjórnsýslulaga er fjallað um áhrif þess að kæra berst að liðnum kærufresti. Ber þá samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins að vísa henni frá nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til efnismeðferðar. Verður ekki af gögnum þessa máls ráðið að slíkum aðstæðum sé til að dreifa að lagagreinin eigi við og má í því sambandi benda á að lögmælt opinber birting ákvörðunar hefur þá þýðingu að almenningi telst vera kunnugt um hana. Verður máli þessu því vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.