Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2602022 Varðgjárlón

Árið 2026, fimmtudaginn 26. febrúar 2026, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2602022, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar frá 28. ágúst 2026 um að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna hækkunar vatnsyfirborðs Varðgjárlóns í landi Ytri–Varðgjár. 

Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

  1. Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er barst nefndinni 15. febrúar 2026, kærir A, Syðri–Hóli, Eyjafjarðasveit, þá ákvörðun sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar frá 28. ágúst 2025 að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna hækkunar vatnsyfirborðs Varðgjárlóns í landi Ytri–Varðgjár. Er þess krafist að framkvæmdaleyfið verði fellt úr gildi.

Málsatvik og rök

  1. Kærandi vísar til þess að Varðgjárlón heyri undir náttúruverndarlög, einkum vegna leirusvæða, og ekki sé heimilt að raska slíkum svæðum nema brýna nauðsyn beri til og aðrir kostir séu ekki fyrir hendi. Slík rök hafi ekki verið færð fram og álitamál sé hvort slík afgerandi breyting á vistkerfi sem leiði af hinni kærðu ákvörðun ætti að fara í umhverfismat og/eða kynningarferli. Skipulagsnefnd og sveitarstjórn hafi í bókunum sínum skautað framhjá athugasemdum og ábendingum sem fram hafi komið við undirbúning málsins með umsögn Náttúruverndarstofnunar, dags. 6. ágúst 2025, og tölvupóstum frá kæranda sjálfum. Kærandi bendir á að hann hafi engra persónulegra hagsmuna að gæta vegna málsins, en að kæran sé sett fram fyrir hönd fugla sem ekki eigi kost á að gera það sjálfir, sem og vegna virðingar fyrir náttúrunni.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er deilt um ákvörðun sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar frá um að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna hækkunar vatnsyfirborðs Varðgjárlóns í landi Ytri–Varðgjár. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er í 52. gr. skipulagslaga. Um kæruaðild í þeim málum sem undir úrskurðarnefndina heyra er fjallað í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þar er kveðið á um að þeir einir geti kært stjórnvaldsákvarðanir til úrskurðarnefndarinnar sem eigi lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kærð sé. Verður að skýra þetta ákvæði í samræmi við almennar reglur stjórnsýsluréttarins um aðild að kærumálum þar sem áskilið er að kærandi eigi lögvarinna einstaklingsbundinna hagsmuna að gæta af úrlausn máls umfram aðra og jafnframt að þeir hagsmunir séu verulegir.
  1. Svo sem fram kemur af hálfu kæranda hefur hann engra einstaklingsbundinni lögvarinna hagsmuna að gæta vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Í ljósi þess verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.