Árið 2025, fimmtudaginn 7. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. 90/2025, kæra vegna útgáfu staðfestingar á niðurstöðu úttektar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 5. nóvember 2024 á nýbyggingu leikskóla vegna umsóknar um leyfi fyrir auknum fjölda leikskólaplássa.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, 5. júní 2025, kærir Gunnlaugur Sigurðsson, leikskólastjóri leikskólans Sælukots, að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi ekki gefið út staðfestingu á niðurstöðu úttektar sinnar þann 5. nóvember 2024 á nýbyggingu við leikskólann vegna umsóknar um leyfi fyrir auknum fjölda leikskólaplássa. Þá gerði kærandi einnig kröfu um að úrskurðað yrði að leikskólinn hefði með nýbyggingunni uppfyllt skilyrði fyrir fjölgun leikskólaplássa.
Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur 4. júlí 2025.
Málsatvik og rök: Mál þetta á sér nokkra forsögu hjá úrskurðarnefndinni en í kjölfar eftirlits heilbrigðisfulltrúa 5. nóvember 2024 tók Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur þá ákvörðun að stöðva starfsemi leikskólans til bráðabirgða, sbr. 63. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með bréfi dags. 6. s.m. var af hálfu heilbrigðiseftirlitsins upplýst um hvaða úrbætur þyrfti að gera áður en leikskólinn gæti tekið til starfa að nýju. Að afloknum úrbótum var lokun leikskólans aflétt og heimilað að opna hann á ný þann 11. s.m. Ákvörðun um að loka leikskólanum tímabundið var kærð til úrskurðarnefndarinnar með kæru, dags. 10. desember sama ár, mál nr. 172/2024. Þeirri kæru var vísað frá þar sem hún barst nefndinni að kærufresti liðnum.
Í eftirlitsferð Heilbrigðiseftirlitsins 5. nóvember 2024 voru einnig gerðar athugasemdir við frávik er vörðuðu nýbyggingu við leikskólann, en ekki hafði verið brugðist við þeim þegar tímabundinni lokun leikskólans var aflétt. Farið var í eftirfylgniferðir 26. og 29. nóvember s.á. og staðfest að úrbótum vegna þessara frávika væri ekki lokið. Kærandi sendi heilbrigðiseftirlitinu erindi 23. maí 2025 þar sem óskað var staðfestingar á að búið væri að taka út nýtt húsnæði skólans og að það uppfyllti kröfur. Í kjölfar samskipta við kæranda var með eftirlitsferð þann 23. júní s.á. staðfest að úrbótum væri lokið með fullnægjandi hætti. Á afgreiðslufundi Heilbrigðiseftirlitsins þann 3. júlí s.á. var samþykkt breyting á starfsleyfi leikskólans vegna breytinga á húsnæði sem og á fjölda leikskólabarna í samræmi við 2. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998.
Af hálfu kæranda er vísað til þess að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi ekki svarað beiðni hans um staðfestingu á niðurstöðum úttektar frá 5. nóvember 2024 á nýbyggingu við leikskólann vegna umsóknar hans til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um leyfi fyrir auknum fjölda leikskólaplássa. Málinu hafi verið beint á byrjunarreit með almennri kynningu og með því ógilt fyrirliggjandi úttekt.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vísar til þess að það sé ekki hlutverk úrskurðarnefndarinnar að taka nýja ákvörðun í málinu og því beri að vísa frá kröfu kæranda um að úrskurðarnefndin gefi út staðfestingu á að með nýbyggingunni væri búið að uppfylla kröfur um skilyrði fyrir fjölgun leikskólaplássa. Ekki hafi borist beiðni frá kæranda um að senda staðfestingu á úttekt á húsnæðinu á skóla- og frístundasvið, en það hafi verið á hans ábyrgð að gera það. Kærandi hafi þar að auki ekki skilað tilskyldum gögnum til þess að taka mætti mál hans til meðferðar, þ.e. staðfestingu á að úrbótum væri lokið og hefði heilbrigðiseftirlitið þar af leiðandi ekki hafnað beiðni um að gefa út staðfestingu á úttekt. Kæranda hafi ítrekað verið leiðbeint um þá lögbundnu málsmeðferð sem honum bæri að fylgja til þess að fá leyfi til að taka ný leikskólapláss í notkun, en umbeðin breyting á starfsleyfi leikskólans hafi verið samþykkt á afgreiðslufundi 3. júlí 2025.
Kærandi hafi nú fengið staðfestingu á að húsnæði skólans hafi hlotið úttekt og staðist skoðun og hafi hann því ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úr málinu skorið. Því beri að vísa kærumálinu frá úrskurðarnefndinni.
Niðurstaða: Í máli þessu er kært athafnaleysi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, þ.e. að gefa ekki út staðfestingu á niðurstöðu úttektar sem fram fór 5. nóvember 2024 á nýbyggingu við leikskóla vegna umsóknar um leyfi fyrir auknum fjölda leikskólaplássa. Þess er einnig krafist að úrskurðað verði að leikskólinn hefði með nýbyggingunni uppfyllt kröfur um skilyrði fyrir fjölgun um allt að 27 leikskólapláss.
Hlutverk úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og í ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði, sbr. 1. gr. laga nr. 130/2011. Úrskurðarnefndin tekur því lögmæti kærðrar stjórnvaldsákvörðunar til endurskoðunar en tekur ekki nýja ákvörðun í máli eða leggur fyrir stjórnvöld að framkvæma tilteknar athafnir. Verður því ekki tekin afstaða til þeirrar kröfu kæranda að úrskurðað verði um að leikskólinn hafi uppfyllt tilteknar kröfur vegna fjölgunar leikskólaplássa.
Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er meginreglan sú að þeir einir geti kært stjórnvaldsákvarðanir til úrskurðarnefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Eins og að framan greinir hefur kærandi fengið afhenta staðfestingu um úttekt heilbrigðiseftirlitsins og þá hefur breyting á starfsleyfi leikskólans verið samþykkt. Af þeim sökum hefur kærandi ekki lengur lögvarða hagsmuni af kærumáli þessu og verður því vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð:
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
