Árið 2025, föstudaginn 1. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. 115/2025, kæra á erindi byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 25. júní 2025 um að gera lóðarhöfum Ásvallagötu 67 að fjarlægja smáhýsi af lóðinni eða færa það 3,0 m frá mörkum hennar og lóðar nr. 69 við sömu götu.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða
úrskurður
um kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa:
Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er barst nefndinni 22. júlí 2025 kæra A og B, Ásvallagötu 67, Reykjavík, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 25. júní 2025 um að gera þeim að fjarlægja smáhýsi af lóðinni eða færa það 3,0 m frá mörkum hennar og lóðar nr. 69 við sömu götu. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Verður nú tekin afstaða til framkominnar kröfu um frestun réttaráhrifa, sbr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Málsatvik og rök: Með bréfi, dags. 25. júní 2025, var kærendum tilkynnt um að þeim væri veittur 30 daga frestur til að fjarlægja smáhýsi af lóð nr. 67 við Ásvallagötu eða færa það 3,0 m frá mörkum lóðarinnar og lóðar nr. 69 við sömu götu. Var þeim jafnframt leiðbeint um kærufrest til úrskurðarnefndarinnar.
Kærendur vísa til þess að framkvæmdin hafi verið unnin í góðri trú og samkvæmt leiðbeiningum frá starfsmönnum borgarinnar. Smáhýsið uppfylli öll skilyrði byggingarreglugerðar nr. 112/2012 um stærð og hæð og hafi ekki áhrif á hagsmuni nágranna. Þá raski hýsið ekki almannahagsmunum.
Ekki hafa borist athugasemdir borgaryfirvalda við framkomna stöðvunarkröfu.
Niðurstaða: Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda séu þær hafnar eða yfirvofandi, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Þá getur úrskurðarnefndin að sama skapi frestað réttaráhrifum ákvörðunar komi fram krafa um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. 5. gr. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan er sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa. Almennt mælir það á móti því að fallast á kröfu um stöðvun ef fleiri en einn aðili eru að máli og þeir eiga gagnstæðra hagsmuna að gæta. Einnig geta komið til álita þau tilvik þar sem kæruheimild verður í raun þýðingarlaus ef framkvæmdir eru ekki stöðvaðar, svo sem ef sú framkvæmd sem krafist er stöðvunar á er óafturkræf.
Í máli þessu er kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 25. júní 2025 að krefjast þess að smáhýsi á lóð nr. 67 við Ásvallagötu verði fjarlægt. Kærendur hafa nýtt sér heimild til að bera lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar undir úrskurðarnefndina en um íþyngjandi ákvörðun er að ræða sem beinist að kærendum. Eins og málsatvikum er háttað þykir rétt að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar enda liggja ekki fyrir knýjandi ástæður sem gera það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um ágreiningsefni máls þessa.
Úrskurðarorð:
Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 25. júní 2025 um að krefjast þess að smáhýsi á lóð nr. 67 við Ásvallagötu verði fjarlægt.
