Árið 2025, fimmtudaginn 28. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. 114/2025, kæra á ákvörðun skipulagsfulltrúa Hafnafjarðarbæjar frá 28. maí 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hafnarfjarðar vegna Cuxhavengötu 3 og 5.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 21. júlí 2025, kærir A, Birkiberg 8, Hafnarfirði, þá ákvörðun skipulagsfulltrúa Hafnafjarðarbæjar frá 28. maí 2025 að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hafnarfjarðar vegna Cuxhavengötu 3 og 5. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi.
Með bréfi, sem barst nefndinni 22. ágúst 2025, kærir Fornubúðir fasteignafélag hf. sömu ákvörðun. Gerir kærandi kröfu um ógildingu hennar og að sveitarfélaginu verði gert að greiða kæranda málskostnað. Þar sem kærumálin varða sömu ákvörðun og hagsmunir kærenda þykja ekki standa því í vegi verður síðara kærumálið, sem er nr. 135/2025, sameinað máli þessu.
Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Hafnarfjarðarbæ 12. ágúst 2025.
Málsatvik og rök: Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnafjarðarbæjar 20. febrúar 2025 var tekin fyrir umsókn um breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Cuxhavengötu 3 og 5, en í tillögunni fólst breyting á stærðum lóðar, nýjum byggingarreitum, auknu byggingarmagni og að kvöð um gegnumkeyrslu yrði felld niður. Skipulagsfulltrúi tók tillöguna fyrir á afgreiðslufundi sínum 9. apríl s.á. og samþykkti að grenndarkynna hana með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á afgreiðslufundi 28. maí 2025 var erindið tekið fyrir að nýju. Fram kom að erindið hefði verið grenndarkynnt frá 23. apríl til 23. maí s.á. Var bókað að því yrði lokið í samræmi við skipulagslög og að samráð yrði haft við Veitur um veitukerfi og uppbyggingu á svæðinu. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar var birt í B-deild Stjórnartíðinda 18. júní 2025.
Kærendur byggja kröfu sína um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar á því að erindið hafi ekki verið grenndarkynnt í samræmi við fyrirmæli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Galli hafi því verið á málsmeðferðinni og sé því óumflýjanlegt að fella ákvörðunina úr gildi. Ekki sé um óverulega breytingu að ræða m.a. með tilliti til þess að byggingarmagn verði aukið um 250% og hæð bygginga um 20%. Tillagan hafi verið unnin út frá deiliskipulagi sem sé ekki í gildi dag. Breytingin feli í sér að akstur fari um sundið á milli Fornubúða 3 og 5, en það ekki geti staðist að umsækjandi hinnar kærðu deiliskipulagsbreytingar geti með því ráðstafað hluta lóðar Fornubúða 3 og 5.
Hafnafjarðarbær telur að málsmeðferð hinnar kærðu deiliskipulagsbreytingar hafi að öllu leyti verið í samræmi við lög og reglur.
Niðurstaða: Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er kærufrestur til úrskurðarnefndarinnar einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðun þá sem kæra lýtur að. Sé um að ræða ákvörðun sem sætir opinberri birtingu telst kærufrestur frá birtingu ákvörðunar. Hin kærða ákvörðun var birt í B-deild Stjórnartíðinda 18. júní 2025. Tók kærufrestur því að líða 19. s.m., sbr. 1. mgr. 8. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og lauk honum 18. júlí s.á. Kærur í máli þessu bárust úrskurðarnefndinni 21. júlí og 22. ágúst 2025.
Í 28. gr. stjórnsýslulaga er fjallað um áhrif þess ef kæra berst að liðnum kærufresti. Ber þá að vísa kæru frá nema að afsakanlegt verði talið að hún hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að hún verði tekin til efnismeðferðar. Ekki þykir unnt að taka kærumál þetta til meðferðar að liðnum kærufresti samkvæmt þessum undantekningum, en lögmælt opinber birting ákvörðunar hefur þá þýðingu að almenningi telst vera kunnugt um efni hennar.
Með vísan til þess sem að framan er rekið verður máli þessu vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð:
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
