Ár 2006, miðvikudaginn 2. ágúst, kom úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála saman til fundar í sumarhúsi að Heiðarlundi í landi Hallkellshóla, Grímsnesi. Mætt voru Ásgeir Magnússon héraðsdómari, varaformaður, Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur og Aðalheiður Jóhannsdóttir dósent.
Fyrir var tekið mál nr. 56/2006, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa uppsveita Árnessýslu frá 25. október 2005 um að veita leyfi til byggingar sumarhúss á lóðinni að Kiðjabergi 109 í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
úrskurður
um kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda:
Með bréfi til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 7. júlí 2006, er barst úrskurðarnefndinni sama dag, kærir Ívar Pálsson hdl., f.h. Þog Þ, Glaðheimum 14, Reykjavík, eigenda sumarhúss á lóð nr. 111 að Kiðjabergi í Grímsnes- og Grafningshreppi, þá ákvörðun byggingarfulltrúa uppsveita Árnessýslu frá 25. október 2005 að veita leyfi til byggingar sumarhúss á lóðinni að Kiðjabergi 109 í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Gera kærendur þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kveðinn upp bráðabirgðaúrskurður um stöðvun framkvæmda samkvæmt hinni kærðu ákvörðun þar til niðurstaða liggur fyrir í kærumálinu. Verður krafan um stöðvun framkvæmda nú tekin til úrskurðar.
Málsatvik og rök: Hinn 7. desember 2005 samþykkti sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar á svæði C í landi Kiðjabergs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Hinn 25. október 2005 veitti byggingarfulltrúi uppsveita Árnessýslu leyfi til byggingar sumarhúss á lóðinni nr. 109 í landi Kiðjabergs.
Hinn 14. júní 2006 barst Skipulagsstofnun erindi sveitarfélagsins vegna fyrrgreindrar deiliskipulagsbreytingar og í bréfi stofnunarinnar, dags. 28. sama mánaðar, segir eftirfarandi: „Skipulagsstofnun hefur farið yfir innsend gögn og til að geta tekið afstöðu til málsins þarf að huga að eftirfarandi atriðum og lagfæra uppdrátt: Yfirfara þarf skipulag á svæðinu m.t.t. ofangreindra umsagna, merkja fornleifar á uppdrátt og gera þarf grein fyrir kvöðum á lóðum sem eru til komnar vegna fornleifa eða annars. Skipulagssvæði það sem breytingin nær til þarf að afmarka á yfirlitsuppdrætti.“
Kærendur hafa kært byggingarleyfið til úrskurðarnefndarinnar eins og að framan greinir.
Kærendur skírskota m.a. til þess að hið kærða byggingarleyfi sé ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag frá árinu 1990. Sveitarstjórn hafi raunar samþykkt breytingar á því deiliskipulagi en málsmeðferðinni sé ekki lokið enda hafi gildistaka breytinganna ekki verið auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Ekki liggja fyrir sjónarmið byggingarleyfishafa til framkominnar kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda, en eins og málum er háttað þykir það ekki koma í veg fyrir að kveðinn verði upp úrskurður til bráðabirgða um kröfuna. Í símbréfi úrskurðarnefndarinnar hinn 7. júlí 2006 var þess óskað að byggingarfulltrúi kynnti byggingarleyfishafa kröfuna.
Niðurstaða: Eins og að framan er rakið er í máli þessu deilt um lögmæti ákvörðunar byggingarfulltrúa uppsveita Árnessýslu frá 25. október 2005 um að veita leyfi til byggingar sumarhúss á lóðinni nr. 109 í landi Kiðjabergs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Eru framkvæmdir á umræddri lóð hafnar.
Þegar litið er til þess að verulegar líkur eru á að hið kærða byggingaleyfi eigi ekki stoð í gildandi deiliskipulagi svæðisins þykir rétt að fallast á kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda á meðan mál þetta er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð:
Framkvæmdir, sem hafnar eru að lóðinni nr. 109 í landi Kiðjabergs í Grímsnes- og Grafningshreppi, með stoð í hinu kærða byggingarleyfi, skulu stöðvaðar meðan kærumál þetta er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni.
___________________________
Ásgeir Magnússon
___________________________ ______________________________
Þorsteinn Þorsteinsson Aðalheiður Jóhannsdóttir