Ár 1998, fimmtudaginn 26. mars, kom úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Laugavegi 59 í Reykjavík. Mættir voru Gunnar Jóhann Birgisson, hæstaréttarlögmaður, Þorsteinn Þorsteinsson, byggingarverkfræðingur og Hólmfríður Snæbjörnsdóttir, lögfræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. 6/1998
Krafa um stöðvun framkvæmda á lóðinni nr. 3 við Fjóluhlíð í Hafnarfirði.
Á málið er nú lagður svofelldur
úrskurður:
Með vísun til 5. mgr. 8. gr. laga nr. 73/1997 og að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar í kærumálinu nr. 6/1998 þykir úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála rétt, að verða við kröfu S, f. h. íbúa/eigenda hússins á lóðinni nr. 4 við Fjóluhlíð í Hafnarfirði um að stöðva framkvæmdir á lóðinni nr. 3 við Fjóluhlíð.
Úrskurðarorð:
Framkvæmdir á lóðinni nr. 3 við Fjóluhlíð í Hafnarfirði skulu stöðvaðar þar til úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur kveðið upp úrskurð um hvort samþykkt byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar frá 27. janúar 1998 um að leyfa byggingu tveggja íbúða húss á lóðinni þar sem önnur íbúðin er 79.4 fermetrar og hin 126.9 fermetrar, skuli felld úr gildi eða staðfest.