Árið 2026, mánudaginn 6. júlí, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, sbr. 1. mgr. 2. gr. sömu laga, fyrir:
Mál nr. UUA2606017, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar frá 2. júlí 2026 um að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 3 við Goðahraun.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
úrskurður
um kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda:
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 19. júní 2026, kærir íbúi að Goðahrauni 13, Vestmannaeyjum, þá ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar frá 16. s.m. að samþykkja byggingaráform á lóð nr. 3 við Goðahraun. Er þess krafist að ákvörðunin verði ógild. Hin umræddu byggingaráform voru samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 2. júlí s.á. Með hliðsjón af 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 verður að líta svo á að það sé hin kærða ákvörðun í máli þessu og að gerð sé krafa um ógildingu þeirrar ákvörðunar. Jafnframt fer kærandi fram á að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Vestmannaeyjabæ 28. júní 2026.
Málsatvik og rök
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar 9. apríl 2026 var tekin fyrir umsókn lóðarhafa að Goðahrauni 3 um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni. Var umsókninni vísað til umhverfis- og skipulagsráðs sem tók erindið fyrir á fundi sínum 13. s.m. þar sem samþykkt var að grenndarkynna umsóknina með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsóknin var grenndarkynnt 21. maí 2026 með fresti til athugasemda til 25. júní s.á. og bárust þrjár umsagnir vegna málsins auk fyrirspurna og ábendinga í tölvupósti. Erindið var tekið fyrir að nýju á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 16. júní s.á. þar sem byggingaráformin voru samþykkt. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 2. júlí s.á. var umsókn um byggingarleyfi samþykkt í samræmi við 11. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og er það hin kærða ákvörðun í máli þessu.
- Kærandi vísar til þess að sveitarfélaginu hafi borið að gera breytingar á deiliskipulagi vegna hliðrunar og breytinga á byggingarlínum í Goðahrauni. Ekki hafi verið heimilt að grenndarkynna slíka breytingu. Þá hafi málið ekki verið nægilega rannsakað auk þess sem brotið hafi verið gegn réttmætum væntingum og eignarrétti kæranda.
- Vestmannaeyjabær vísar til þess að byggingarleyfi hafi ekki verið gefið út og engar framkvæmdir séu hafnar. Fyrstu framkvæmdir verði jarðvegsframkvæmdir eftir útgáfu byggingarleyfis. Þar sem slíkar framkvæmdir séu afturkræfar sé engin knýjandi þörf á að stöðva framkvæmdir eða fresta réttaráhrifum.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið sé til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun framkvæmda kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra beri þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda.
- Tekið er fram í athugasemdum um 5. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun sé íþyngjandi fyrir hann. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af æðra stjórnvaldi.
- Í máli þessu er gerð krafa um stöðvun framkvæmda á grundvelli samþykktra byggingaráforma er fela í sér heimild til að byggja einbýlishús á lóð nr. 3 við Goðahraun í Vestamannaeyjum. Fyrir liggur að byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út og framkvæmdir því ekki hafnar. Þá hefur sveitarfélagið bent á að fyrstu framkvæmdir verði jarðvegsframkvæmdir sem séu afturkræfar.
- Með hliðsjón af framangreindum lagaákvæðum og þeim sjónarmiðum sem liggja þeim að baki, sem og því að um er að ræða afturkræfar framkvæmdir, verður ekki talin knýjandi þörf á að stöðva framkvæmdir á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður kröfu kæranda þar um því hafnað.
- Rétt þykir þó að taka fram að framkvæmdaraðili ber áhættu af úrslitum kærumálsins kjósi hann að hefja framkvæmdir áður en niðurstaða þessa máls liggur fyrir.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli ákvörðunar byggingarfulltrúa Vestmannaeyja frá 2. júlí 2026 um að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 3 við Goðahraun.
