Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2602004 Heiðarbær

Árið 2026, föstudaginn 12. júní, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, fyrir:

Mál nr. UUA2602004, kæra á ákvörðunum sveitarstjórna Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps frá 20. ágúst 2025 annars vegar og  3. september s.á. hins vegar um að samþykkja tillögu að deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Heiðarbæjar í Þingvallasveit.

Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

  1. Með tölvupósti Skipulagsstofnunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála 4. febrúar 2026 var framsend kæra A og B, dags. 2. s.m., þar sem vísað var til deiliskipulags Heiðarbæjar við Þingvallavatn og þess krafist að það yrði fellt úr gildi og sent til lögmætrar afgreiðslu að nýju. Greint skipulag var samþykkt af sveitarstjórnum Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps 20. ágúst 2025 annars vegar og 3. september s.á. hins vegar og tók það gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 6. janúar 2026. Verður því litið svo á að það séu nefndar ákvarðanir sveitarstjórnanna sem sæti kæru til úrskurðarnefndarinnar.
  1. Með bréfum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. og 6. febrúar 2026, er bárust nefndinni 5. og 6. s.m., kæra C, D og E sömu ákvarðanir sveitarstjórna Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps. Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 5. febrúar 2026, kæra F og G einnig sömu ákvarðanir. Verða framangreind kærumál, sem eru nr. UUA2602006, UUA2602009, UUA2602011 og UUA2602008, sameinuð máli þessu þar sem hagsmunir kærenda þykja ekki standa því í vegi, en kærendur munu vera lóðarhafar og eigendur sumarhúsa á skipulagssvæðinu.
  1. Gögn málsins bárust frá Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi 27. mars 2026 og í apríl s.á. Þá skiluðu sveitarfélögin inn sameiginlegri umsögn vegna málsins 15. maí s.á.

Málsatvik og rök

  1. Tillaga að deiliskipulagi Heiðarbæjar við Þingvallavatn, frístundabyggð, var samþykkt af sveitarstjórn Bláskógabyggðar 20. ágúst 2025 og af sveitarstjórn Grímsnes- og Grafnings­hrepps 3. september s.á. Um þegar byggt hverfi frístundahúsa er að ræða. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins var birt í B-deild Stjórnartíðinda 6. janúar 2026. Í henni kom fram að um væri að ræða nýtt deiliskipulag sem hefði að markmiði að gefa heildarmynd af svæðinu. Með gerð þess væri unnið að því að samþætta lóðamörk og auka skilvirkni við umsýslu á lóðum, sem og að ramma inn svæðið og nýtingu þess í heild og einstaka þætti þess. Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar 1. apríl s.á. og á fundi sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps 13. s.m. var samþykkt að „fella úr gildi auglýsingu nr. 1593/2025 […] vegna formgalla á málsmeðferð“. Hinn 21. og 22. apríl 2026 var á fundum sveitarstjórnar Bláskógabyggðar annars vegar og sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps hins vegar lögð fram uppfærð tillaga að deiliskipulagi umrædds svæðis og hún samþykkt. Var mælst til þess að deiliskipulagið tæki gildi með birtingu auglýsingar þar um að lokinni lögbundinni yfirferð Skipulagsstofnunar, nú Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, sbr. breytingarlög nr. 11/2026. Birtist auglýsing um gildistöku skipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda 29. apríl 2026.
  1. Kærendur benda á að málsmeðferð deiliskipulagsins hafi ekki verið í samræmi við lög. Sveitarfélögin hafi t.a.m. ekki brugðist við athugasemdum Skipulagsstofnunar, sbr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kafli í greinargerð deiliskipulagsins um málsmeðferð hafi verið rangur í veigamiklum atriðum. Byggingarreitir séu aðeins sýndir á fáeinum lóðum. Jafnframt sé ákvæði um bátaskýli ósanngjarnt og ólögmætt. Einnig hafi skipulagsuppdráttur ekki verið uppfærður til samræmis við samþykktir sveitarfélagsins á áður framkomnum athugasemdum lóðarhafa. Þá hafi verið skortur á samráði, einkum á síðari stigum deiliskipulagsgerðarinnar.
  1. Af hálfu sveitarfélagsins er þess aðallega krafist að kröfum kærenda verði vísað frá úrskurðar­nefndinni, en til vara að þeim verði hafnað. Ekki séu lagaskilyrði fyrir því að kærurnar verði teknar til efnismeðferðar, enda hið kærða deiliskipulag í reynd ekki í gildi. Þá hafi verið brugðist við athugasemdum Skipulagsstofnunar og tekin rökstudd afstaða til allra atriða sem umsagnaraðilar hafi bent á. Sveitarfélögin hafi síðan haft endanlegt ákvörðunarvald um hvort gerðar skyldu frekari breytingar á deiliskipulaginu vegna þeirra eða ekki.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu eru kærðar ákvarðanir sveitarstjórna Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafnings­hrepps frá 20. ágúst 2025 annars vegar og 3. september s.á. hins vegar um að samþykkja tillögu að deili­skipulagi fyrir frístundabyggð í landi Heiðarbæjar í Þingvallasveit. Hinn 6. janúar 2026 var birt auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda um gildistöku skipulagsins, sbr. 42. gr. skipulags­laga nr. 123/2010. Eins og greinir að framan samþykktu sveitarstjórnirnar að fella þá aug­lýsingu úr gildi vegna formgalla á málsmeðferð og í framhaldinu samþykktu þær á fundum 21. og 22. apríl 2026 uppfærða tillögu vegna sama deiliskipulags. Birtist auglýsing um gildistöku þess í B-deild Stjórnartíðinda 29. s.m. Með gildistöku hins nýja skipulags hefur deiliskipulag það sem hinar kærðu ákvarðanir taka til ekki lengur réttarverkan að lögum. Hafa kærendur því ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn kærumálsins. Tekið skal fram að undir rekstri málsins beindi hluti kærenda kærum að nýju til úrskurðarnefndarinnar vegna framangreindra ákvarðana sveitarstjórna Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps frá 21. og 22. apríl 2026 og bíða þau kærumál úrlausnar nefndarinnar.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.