Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2602019 Nónsmári

Árið 2026, fimmtudaginn 12. febrúar, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2602019, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs frá 10. febrúar 2026 um að samþykkja breytt deiliskipulag Nónhæðar vegna Nónsmára 1–17. 

Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 11. febrúar 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir A, Foldasmára 18, þá ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs frá 10. febrúar 2026 að samþykkja breytt deiliskipulag Nónhæðar vegna Nónsmára 1–17. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað á meðan málið sé til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Þykir málið nægilega upplýst til að það verði tekið til endanlegs úrskurðar og er því ekki tilefni til að taka afstöðu til kröfu kæranda um frestun réttarárhrifa.

Málsatvik og rök

  1. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs 2. febrúar 2026 var tekin fyrir tillaga lóðarhafa Nónsmára 1–17 um breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Í tillögunni fólst tilfærsla íbúða milli lóðanna og hækkun á leyfilegri hæð á norðurhluta lóðanna úr tveimur í þrjár. Með því var gert ráð fyrir aukningu á leyfilegu byggingarmagni en sama fjölda íbúða. Sam­þykkti meirihluti ráðsins tillöguna með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 30. janúar s.á. Var sú afgreiðsla staðfest af meirihluta bæjarstjórnar á fundi hennar 10. febrúar s.á.
  1. Kærandi telur að fyrirhuguð breyting á deiliskipulagi Nónhæðar muni hafa bein áhrif á hags­muni hans hvað varði útsýni, skuggavarp og næði. Hin kærða ákvörðun bæjarstjórnar sé reist á ólögmætri málsmeðferð. Málið hafi verið endurupptekið í trássi við skýr fyrirmæli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Gögn málsins beri með sér að við meðferð málsins hafi bæjar­yfirvöld ekki gætt að hlutlægni heldur unnið náið með lóðarhafa að því að koma málinu aftur á dagskrá, sem brjóti gegn vönduðum stjórnsýsluháttum. Til viðbótar við formgalla séu efnis­legir annmarkar á deiliskipulagsbreytingunni.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal senda Skipulagsstofnun deili­skipulag sem samþykkt hefur verið af sveitarstjórn og samantekt um málsmeðferð ásamt athugasemdum og umsögnum um þær innan sex mánaða frá því að frestur til athugasemda rann út. Að lokinni lögmætisathugun Skipulagsstofnunar skal sveitarstjórn birta auglýsingu um sam­þykkt deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda, en slík auglýsing er skilyrði gildistöku deili­skipulags og markar jafnframt upphaf eins mánaðar kærufrests til úrskurðar­nefndarinnar, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Umrædd deili­skipulagsáætlun hefur ekki verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Liggur því ekki fyrir ákvörðun sem bindur enda á mál í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem kæranleg er til úrskurðar­nefndarinnar. Verður kærumáli þessu því vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.