Árið 2024, fimmtudaginn 18. apríl, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. 18/2024, kæra á ákvörðun Sveitarfélagsins Voga frá 29. janúar 2024, um álagningu gjalds vegna sorptunna fyrir fasteignina Hafnargötu 1, Vogum.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, 19. febrúar 2024, er barst nefndinni sama dag, kærir A þá ákvörðun Sveitarfélagsins Voga frá 29. janúar 2024 um álagningu gjalds vegna sorptunna fyrir fasteignina Hafnargötu 1, Vogum. Er þess krafist að gjaldið verði fellt niður.
Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Sveitarfélaginu Vogum 4. mars 2024.
Málavextir: Með álagningarseðli fasteignagjalda fyrir árið 2024, sem barst kæranda 29. janúar 2024, voru lögð á hann gjöld vegna sorphirðu við hús hans, Hafnargötu 1, Vogum. Skiptust þau þannig að vegna 240 lítra tvískiptrar tunnu fyrir almennt/lífrænt sorp var gjaldið kr. 34.000, vegna 240 lítra tunnu fyrir plast kr. 8.500 og vegna 240 lítra tunnu fyrir pappír kr. 8.500. Samanlagt nam fjárhæð gjaldanna kr. 51.000.
Málsrök kæranda: Í kæru er rakið að kærandi hafi fest kaup á húsi sínu í Vogum árið 2018 og hafi hann um leið afþakkað sorptunnur. Næstu fjögur ár hafi ekki verið lagt gjald á hann vegna sorphirðu og hafi kærandi aðeins greitt sorpeyðingargjald. Sumarið 2023 hafi verið komið á nýju flokkunarkerfi á Suðurnesjum og hafi Sveitarfélagið Vogar dreift tunnum til heimila þar sem verið hafi þrír eða fleiri íbúar. Hann hafi afþakkað að veita þeim móttöku og fengið seinna að vita að hann ætti ekki rétt á þeim þar sem hann væri einn í heimili. Hann sé ósáttur við að vera látinn greiða fyrir þrjár tunnur sem hann hafi aldrei fengið og þurfi ekki á að halda. Hann kjósi að flokka allt sorp sjálfur og losa það í grenndargáma eða fara með það til söfnunarstöðva sem standi íbúum til boða.
Málsrök Sveitarfélagsins Vogar: Sveitarfélagið krefst þess að kröfum kæranda verði hafnað. Ákvörðun um innheimtu sorpgjalda fyrir söfnun og meðhöndlun úrgangs byggi á skýrum fyrirmælum laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Samkvæmt lögunum fari sveitarfélög með ákvörðunarvald um fyrirkomulag söfnunar á heimilis- og rekstrarúrgangi og sé þeim það skylt skv. 1. mgr. 8. gr. laganna. Sé sorpgjald lagt á hverja íbúð og innheimt með fasteignagjöldum. Sé gjaldið byggt upp þannig að greiddur sé raunkostnaður fyrir þjónustuna í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna. Öll heimili í sveitarfélaginu hafi fengið afhentar þrjár flokkunartunnur, óháð fjölda íbúa á heimili, enda skylt að flokka pappa, plast og lífúrgang. Kæranda hafi verið tjáð þetta bæði munnlega og í tölvupósti og sé hafnað staðhæfingu um að hann hafi ekki átt rétt á tunnum.
Sveitarfélagið Vogar sé aðili að sameignarfélagi sveitarfélaga um rekstur móttöku-, flokkunar- og sorpbrennslustöðvarinnar Kölku í Helguvík sem framkvæmi sorphirðu og meðhöndlun úrgangs. Við undirbúning nýrrar gjaldskrár um sorphirðu í sveitarfélaginu nr. 1633/2023 hafi verið tryggt að hún mundi endurspegla raunkostnað við veitta þjónustu. Þá hafi verið gerð breyting á gjaldskránni, samþykkt í bæjarstjórn 31. janúar 2024, sem hafi komið til vegna nýrra upplýsinga. Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda árið 2024 hjá sveitarfélaginu, og þar með sorphirðugjalda, hafi verið 1. febrúar sl. og hafi álagning miðað við uppfærða gjaldskrá.
Niðurstaða: Í máli þessu krefst kærandi þess að felld verði úr gildi álagning sorpgjalds fyrir árið 2024 hvað varðar þrjár sorptunnur vegna fasteignar hans að Hafnargötu 1, Vogum.
Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs er sveitarstjórn skylt að ákveða fyrirkomulag söfnunar á heimilis- og rekstrarúrgangi, ásamt því að hún ber ábyrgð á flutningi heimilisúrgangs og skal sjá um að starfræktar séu móttöku- og söfnunarstöðvar fyrir úrgang. Samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar setur sveitarstjórn sérstaka samþykkt þar sem tilgreind eru atriði um meðhöndlun úrgangs, umfram það sem greinir í lögunum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Þar er heimilt að kveða á um fyrirkomulag sorphirðu, skyldu einstaklinga og lögaðila til að flokka úrgang, stærð, gerð, staðsetningu og merkingu sorpíláta og sambærileg atriði.
Í 1. mgr. 10. gr. laga nr. 55/2003 er kveðið á um að koma skuli upp sérstakri söfnun á heimilisúrgangi. Sérstök söfnun skuli vera á a.m.k. eftirfarandi úrgangstegundum: pappír og pappa, málmum, plasti, gleri, lífúrgangi, textíl og spilliefnum. Heimajarðgerð sé þó heimil sem og söfnun lífúrgangs með öðrum úrgangi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Skuli sérstök söfnun á pappír og pappa, plasti og lífúrgangi fara fram á sem aðgengilegastan hátt við íbúðarhús og hjá lögaðilum í þéttbýli. Söfnunin skuli fara fram innan lóðar viðkomandi íbúðarhúss eða lögaðila. Skuli sveitarfélög útfæra nánara fyrirkomulag söfnunar í samþykkt um meðhöndlun úrgangs. Einstaklingum og lögaðilum er skylt að flokka heimilisúrgang í samræmi við þessi fyrirmæli, sbr. 3. mgr. lagagreinarinnar. Þessu til viðbótar segir í 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs að sveitarstjórn sé ábyrg fyrir reglulegri tæmingu sorpíláta og flutningi heimilisúrgangs frá öllum heimilum og lögaðilum. Auk þess skuli fasteignareigandi sjá til þess að fasteign hans fylgi nægilega mörg sorpílát og að þau séu endurnýjuð eftir þörfum, sbr. 1. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar.
Þessi fyrirmæli taka mið af því að meðhöndlun sorps er grunnþjónusta í sveitarfélagi. Hún þarf að vera í föstum skorðum og er þess eðlis að hún má ekki falla niður þótt einhverjir íbúar nýti sér hana ekki og að sama skapi er íbúum ekki í sjálfsvald sett hvort að þeir nýta sér þjónustuna eða ekki. Hvað varðar Sveitarfélagið Voga er í gildi samþykkt nr. 426/2005 um meðhöndlun úrgangs á Suðurnesjum. Í 3. gr. hennar er fjallað um söfnun á heimilisúrgangi og kemur þar fram að sorp skuli hirt með reglulegum hætti frá íbúðarhúsum. Tekið er fram að stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. ákveði hvaða ílát og hvaða aðferðir skuli nota til sorpsöfnunar og sorphirðu. Eigendum og umráðamönnum íbúðarhúsnæðis á Suðurnesjum sé skylt að nota þau ílát og þær aðferðir við sorpsöfnun sem stjórnin ákveði en Sorpeyðingarstöðin leggi íbúum til viðeigandi sorpílát, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar. Þessi fyrirmæli verður að túlka með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 55/2003 og verður að álíta að kæranda sé skylt að greiða fyrir þá þjónustu við sorphirðu sem honum stendur til boða eins og öðrum íbúum í sveitarfélaginu.
Samkvæmt 2. mgr. 23. laga nr. 55/2003, sbr. lög nr. 103/2021, skulu sveitarfélög innheimta gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs. Tekið er fram að skylt sé að innheimta gjald sem næst raunkostnaði við viðkomandi þjónustu, svo sem með því að miða gjaldið við magn úrgangs, gerð úrgangs, losunartíðni, frágang úrgangs og aðra þætti sem áhrif hafa á kostnað við meðhöndlun úrgangs viðkomandi aðila. Þó er heimilt að færa innheimtu gjalda að nokkru á milli úrgangsflokka í því skyni að stuðla að markmiðum laganna auk þess að heimilað er að ákveða gjaldið sem fast gjald á hverja fasteignareiningu til þess að innheimta allt að 25% af heildarkostnaði sveitarfélags. Samkvæmt 4. mgr. lagagreinarinnar skal birta slíka gjaldskrá í B-deild Stjórnartíðinda.
Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Vogum nr. 1633/2023 var birt í B-deild Stjórnartíðinda 2. janúar 2024. Hinn 31. s.m. samþykkti bæjarstjórn breytingu á gjaldskránni og tók sú breyting gildi með auglýsingu nr. 382/2024 sem birt var í B-deild 27. febrúar s.á. Hin kærða álagning er dags. 29. janúar s.á., en þrátt fyrir það tók álagningin mið af gjaldskránni eins og hún var eftir breytinguna sem tók gildi 27. febrúar s.á. Með hliðsjón af því að öll gjöld lækkuðu við þá breytingu verður sá annmarki ekki talinn varða gildi hennar. Í 3. gr. gjaldskrárinnar er mælt fyrir um að sorpgjald fari eftir rúmmáli þeirra sorpíláta sem eru við heimili og var álagning á kæranda samkvæmt gjaldskránni og þeirri þjónustu sem honum stóð til boða. Fjallað er um breytingar á tunnufjölda í sömu grein og er kveðið á um að breytt innheimta geti komið til vegna breytinga á fjölda þeirra, en það eigi þó aðeins við um þau heimili sem séu með tunnur umfram það sem lög segi til um. Samkvæmt 4. gr. gjaldskrárinnar er fast gjald á hverja íbúðareiningu kr. 18.000 til þess að innheimta allt að 25% af heildarkostnaði sveitarfélagsins við meðhöndlun úrgangs.
Þegar um svokölluð þjónustugjöld er að ræða gilda ýmis sjónarmið um álagningu þeirra, m.a. að beint samhengi sé á milli fjárhæðar gjaldsins og þess kostnaðar sem til fellur við það að veita þjónustuna. Fjárhæðin verður einnig að byggjast á traustum útreikningi, en þó hefur verið litið svo á að sé ekki hægt að sérgreina nákvæmlega ákveðna kostnaðarliði sé heimilt að byggja þá á skynsamlegri áætlun. Sá sem greiðir þjónustugjöld getur hins vegar almennt ekki krafist þess að sá kostnaður sem hlýst af því að veita þjónustuna sé reiknaður nákvæmlega út heldur er heimilt að haga gjaldtöku svo að um sé að ræða jafnaðargjald.
Við meðferð þessa máls óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu um útreikninga sorphirðugjalds þess. Fram kom að útreikningarnir byggi á áætluðum raunkostnaði við hlutdeild í rekstri móttöku-, flokkunar- og sorpbrennslustöðvarinnar Kölku, sem deilt sé niður á þjónustunotendur að teknu tilliti til áætlaðs endurgjalds frá Úrvinnslusjóði. Ákvörðun sorpgjalda og þar með endanleg tekjuáætlun málaflokksins byggist á niðurstöðum þessa. Framlögð gögn bera með sér að kostnaður sveitarfélagsins vegna sorphirðu á árinu 2024 sé áætlaður rúmlega kr. 40.000.000, en innheimtar verði kr. 39.542.703. Er það í samræmi við áskilnað 3. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um að álögð gjöld megi ekki vera hærri en kostnaður sem falli til í sveitarfélaginu við meðhöndlun úrgangs og tengda starfsemi sem samræmist markmiðum laganna. Föst gjöld eru áætluð kr. 12.042.000 og því ekki umfram 50% af heildarkostnaði sveitarfélagsins, sbr. III. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 55/2003. Þá verður að telja að kostnaðarliðir að baki hinna umdeildu sorphirðugjalda falli undir þá þætti sem sveitarfélögum er skylt að innheimta gjald fyrir á grundvelli 2. mgr. 23. gr. sömu laga, sbr. 1. mgr. 10. gr. Verður að þessu virtu ekki annað ráðið en að útreikningur hins kærða gjalds hafi byggst á skynsamlegri áætlun. Telst gjaldið því lögmætt þjónustugjald samkvæmt áður tilvitnuðum ákvæðum 23. gr. laga nr. 55/2003.
Með hliðsjón af framangreindu verður kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar hafnað.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun Sveitarfélagsins Voga frá 29. janúar 2024, um álagningu gjalds vegna sorptunna fyrir fasteignina Hafnargötu 1, Vogum.