Árið 2026, mánudaginn 13. apríl 2026, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2604001, kæra á ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 30. mars 2026 um að aflífa skuli hundinn Herkúles.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
úrskurður
um kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa:
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 7. apríl 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra eigendur hundsins Herkúlesar þá ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 30. mars 2026 um að aflífa skuli hundinn.Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað á meðan málið sé til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Leitað var umsagnar Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um kröfu um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar og barst hún nefndinni 8. apríl 2026.
Málsatvik og rök
- Kærendur eru eigendur hunds af tegundinni miniature english bull terrier. Hinn 1. desember 2025 voru kærendur með hundinn á afgirtu svæði þar sem honum var ætlað að leika við annan hund. Það gerðist að hundur kærenda beit hinn hundinn með þeim afleiðingum að aflífa þurfti hann vegna áverkanna. Með bréfi, dags. 30. mars 2026, var kærendum tilkynnt að heilbrigðiseftirlitið hefði yfirfarið gögn málsins og metið þau svo að hundurinn væri hættulegur og að gerð yrði krafa um að hundurinn yrði aflífaður, sbr. 5. mgr. 8. gr. samþykktar nr. 1348/2022 um hundahald í Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ.
- Kærendur vísa til þess að aflífun sé alvarlegt og óafturkræft úrræði og að stjórnvaldið hafi hafnað vægari úrræðum með ófullnægjandi rökum. Málið byggi á einhliða frásögn og ekki hafi farið fram fullnægjandi rannsókn á atvikum.
- Af hálfu Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness var veitt samþykki fyrir frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar á meðan málið væri til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kærendum þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Í 3. mgr. sama ákvæðis er enn fremur kveðið á um að sé um að ræða ákvörðun sem ekki feli í sér heimild til framkvæmda geti úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum hennar komi fram krafa um það af hálfu kæranda.
- Tekið er fram í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum t.d. tjóni. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af hinu æðra stjórnvaldi.
- Í máli þessu er kærð ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um aflífun á hundi. Um er að ræða íþyngjandi óafturkræfa ákvörðun. Eins og málsatvikum er háttað þykir rétt að fresta réttaráhrifum hennar, enda liggja ekki fyrir knýjandi ástæður sem gera það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar.
Úrskurðarorð
Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 30. mars 2026 um að aflífa skuli hundinn Herkúles.
