Árið 2026, föstudaginn 16. janúar, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mættir voru Unnþór Jónsson varaformaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur. Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.
Fyrir var tekið mál nr. 159/2025, kæra á afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 15. september 2025 á fyrirspurn um að fjölga íbúðum að Suðurgötu 50A.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 16. október 2025, kæra eigendur Suðurgötu 50A, Akranesi, þá afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 15. september 2025 að „synja umsókn um stofnun fjögurra fasteignanúmera“ að Suðurgötu 50A. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að sveitarfélaginu verði gert að taka málið til nýrrar afgreiðslu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Akraneskaupstað 12. janúar 2026.
Málavextir
- Hinn 26. ágúst 2025 sendu kærendur erindi til Akraneskaupstaðar á eyðublaðinu „Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa“. Kom fram í lýsingu á erindinu að sótt væri um breytingu á tvíbýlishúsi við Suðurgötu 50A þannig að í stað tveggja fasteignanúmera í húsinu yrðu fjögur númer með fjórum íbúðum. Fram kom í greinargerð með fyrirspurninni að framkvæmdir væru einungis innandyra. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs 15. september s.á. var tekið neikvætt í erindið og skipulagsfulltrúa falið að svara því. Kæra vegna þeirrar afgreiðslu barst úrskurðarnefndinni sem fyrr greinir 16. október s.á.
- Hinn 10. nóvember s.á. skilaði skipulagsfulltrúi umsögn vegna erindis kærenda þar sem m.a. kom fram að ekki hefði gerð grein fyrir því hvernig fyrirhugaðar íbúðir kæmu til með að standast þær kröfur sem gerðar væru til íbúðarhúsnæðis í lögum og reglugerðum. Í lok umsagnarinnar var bent á að þar sem engin byggingarleyfisumsókn lægi fyrir væri ekki um að ræða kæranlega ákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Skipulags- og umhverfisráð tók erindið fyrir að nýju á fundi sínum 17. nóvember 2025 þar sem umsögn skipulagsfulltrúa var samþykkt sem svar ráðsins við fyrirspurn kærenda.
Málsrök kærenda
- Kærendur benda á að um innanhússbreytingar sé að ræða sem hafi engin áhrif á útlit eða skipulag svæðisins. Synjunin byggist ekki á lögmætum skipulagslegum rökum heldur virðist eingöngu vera um að ræða formlega höfnun án rökstuðnings. Stjórnvöldum beri að byggja ákvarðanir sínar á málefnalegum sjónarmiðum, en slíkan grundvöll vanti. Fjölmörg dæmi séu um að fasteignum í sama hverfi hafi verið skipt niður í fleiri einingar. Brjóti synjunin því gegn jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Málsrök Akraneskaupstaðar
- Sveitarfélagið bendir á að hin kærða ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs hafi verið tekin 15. september 2025. Ráðið hafi tekið málið upp að nýju á fundi 17. nóvember s.á. og tekið aftur neikvætt í fyrirspurn kærenda. Sé því komin ný ákvörðun og beri á þeirri forsendu að vísa kærumálinu frá. Einnig beri að vísa málinu frá á þeim grundvelli að hin kærða ákvörðun sé ekki kæranleg stjórnvaldsákvörðun þar sem kærendur hafi ekki lagt fram umsókn um leyfi.
Niðurstaða
- Í máli þessu er kærð afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar á fyrirspurn kærenda um hvort heimilt sé að fjölga íbúðum í húsinu að Suðurgötu 50A, en tekið var neikvætt í hana á grundvelli umsagnar skipulagsfulltrúa. Fyrirspurn um afstöðu yfirvalda til erindis verður ekki lögð að jöfnu við formlega umsókn og eðli málsins samkvæmt getur svar þess í því tilfelli ekki talist stjórnvaldsákvörðun með þeirri réttarverkan sem slíkri ákvörðun fylgir, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að auki verður á það bent að hvorki skipulags- og umhverfisráð né skipulagsfulltrúi eru til þess bær að taka endanlega ákvörðun um afdrif umsóknar um byggingarleyfi heldur kemur það í hlut byggingarfulltrúa, sbr. III. kafla mannvirkjalaga nr. 160/2010. Með hliðsjón af framangreindu fólst í hinni kærðu afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs engin sú ákvörðun sem bindur enda á mál og kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga. Ber samkvæmt því að vísa kærumáli þessu frá úrskurðarnefndinni. Kærendum er leiðbeint um að þeir geti óskað eftir því við byggingarfulltrúa að hann taki innsent erindi fyrir sem umsókn um byggingarleyfi.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
