Árið 2018, fimmtudaginn 16. ágúst tók Ómar Stefánsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fyrir mál nr. 154/2017 með heimild í 3. mgr. 3. gr., sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 130/2011:
Kæra vegna samþykktar bæjarstjórnar Garðabæjar frá 7. desember 2017 um veitingu framkvæmdarleyfis vegna lagningar Lyklafellslínu 1.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 27. desember 2017, er barst nefndinni sama dag, kæra A, Kleppsvegi 18 og B, Aðallandi 15, Reykjavík, þá ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 7. desember 2017 að samþykkja veitingu framkvæmdaleyfis vegna Lyklafellslínu 1 í lögsögu sveitarfélagsins. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi.
Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Garðabæ 19. febrúar 2018.
Málsatvik og rök: Forsaga málsins er sú að á árinu 2009 sendi Landsnet hf. Skipulagsstofnun til meðferðar frummatsskýrslu um Suðvesturlínur, styrkingu raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi. Stofnunin auglýsti nefnda skýrslu til kynningar og að kynningartíma liðnum skilaði Landsnet til Skipulagsstofnunar endanlegri matsskýrslu, dags. 10. ágúst 2009. Álit stofnunarinnar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar lá fyrir 17. september s.á. Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 7. desember 2017 var umsókn Landsnets hf., dags. 29. desember 2016, um framkvæmdaleyfi vegna Lyklafellslínu 1 lögð fram og samþykkt. Var sú ákvörðun kærð til úrskurðarnefndarinnar eins og að framan greinir
Kærendur byggja málatilbúnað sinn á því að með hinni kærðu ákvörðun sé brotið gegn eignarréttindum þeirra. Umræddri flutningslínu rafmagns sé að hluta til ætlað að liggja um eignarland kæranda án samráðs eða samninga við þá.
Bæjaryfirvöld Garðabæjar og leyfishafi vísa til þess að ekki liggi fyrir þinglýst skjöl um ætluð eignarréttindi kærenda að landi þar sem fyrirhugað sé að reisa Lyklafellslínu 1.
Niðurstaða: Fyrir liggur að með bréfum, dags. 19. júní 2018, fór leyfishafi fram á það við sveitarstjórnir í Mosfellsbæ, Kópavogi og Garðabæ, að framkvæmdaleyfi sem samþykkt voru af þeirra hálfu vegna Lyklafellslínu 1 yrðu afturkölluð og felld niður. Bæjarstjórn Garðabæjar tók þá ákvörðun á fundi 14. ágúst 2018 að afturkalla hina kærðu ákvörðun frá 7. desember 2017 um að veita framkvæmdaleyfi vegna Lyklafellslínu 1.
Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála geta þeir einir kært stjórnvaldsákvarðanir til nefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Umhverfisverndar-, útivistar- og hagsmunasamtök, sem uppfylla tiltekin skilyrði og hafa þann tilgang að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að, er þó m.a. heimilt að kæra leyfisveitingar vegna framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum án þess að sýna fram á lögvarða hagsmuni.
Eftir afturköllun hinnar kærðu ákvörðunar hefur hún ekki lengur réttarverkan að lögum og hefur því enga þýðingu, hvorki með tilliti til einstaklingsbundinna- né almannahagsmuna, að fá skorið úr um gildi ákvörðunarinnar og taka afstöðu til kröfu kærenda um ógildingu hennar. Verður kærumáli þessu af þeim sökum vísað frá úrskurðarnefndinni.
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ómar Stefánsson