Skip to main content
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

Ársyfirlit 2024

Með janúar 15, 2025Fréttir

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd. Hlutverk hennar er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála. Af hálfu nefndarinnar er lögð áhersla á að kveða upp vandaða úrskurði eins fljótt og kostur er, jafnan innan þriggja mánaða frá því að málsgögn berast frá stjórnvaldi, ellegar innan sex mánaða frá sama tímamarki í viðamiklum málum, svo sem mælt er fyrir um í lögum um nefndina nr. 130/2011.

Á árinu 2024 bárust úrskurðarnefndinni kærur í 182 málum og var afgreiðslu lokið í 153 málum, þar af lauk 95 málum með efnisúrskurðum, 42 málum með frávísunarúrskurðum, 15 málum með því að kærendur afturkölluðu kærur sínar og 1 máli með framsendingu.

Efni þeirra kærumála sem afgreidd voru á árinu skiptist svo:

Byggingarleyfi 30
Deiliskipulag 25
Dráttur á afgreiðslu máls 4
Framkvæmdaleyfi 16
Kerfisáætlun 1
Matsskylduákvörðun 3
Rekstrarleyfi 8
Starfsleyfi 19
Stjórnvaldssekt 1
Úttekt 5
Virkjunarleyfi 2
Þjónustugjald 10
Þvingunarúrræði 18
Önnur byggingarmál 6
Önnur mál 1
Önnur skipulagsmál 4