Árið 2026, þriðjudaginn 16. júní, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 2., fyrir:
Mál nr. UUA2606008, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Vestmannaeyja frá 25. nóvember 2025 um að samþykkja tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 vegna landnotkunarreitana F-1, AT-4 og L-4 við Ofanleiti.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
- Með tölvupósti félags- og húsnæðismálaráðuneytisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. júní 2026, var framsend kæra Guðrúnar Glódísar Gunnarsdóttur frá 5. s.m. á breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 vegna landnotkunarreitana F-1, AT-4 og L-4 við Ofanleiti. Tillaga að þeirri aðalskipulagsbreytingu var samþykkt af bæjarstjórn Vestmannaeyja 25. nóvember 2025 og tók hún gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 24. mars 2026. Verður að skilja málskot kæranda svo að ákvörðun bæjarstjórnar sæti kæru og að krafist sé ógildingar á henni.Málsatvik og rök
- Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja 11. júní 2025 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Ofanleiti og tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis við Ofanleiti. Samhliða var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gerði síðastnefnd tillaga ráð fyrir að lóð Ofanleitisvegar 26 yrði skilgreind sem hluti af athafnasvæði AT-5 í stað frístundabyggðarinnar F-1 og að gerð yrði breyting á mörkum téðs athafnasvæðis og landbúnaðarsvæðis L-4. Við breytinguna myndi landnotkunarreitur AT-4 stækka úr 0,7 í 1,4 ha, en reitir F-1 og L-4 minnka hvor um sig um 0,3 ha. Að lokinni auglýsingu var tillagan samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 19. nóvember 2025. Staðfesti bæjarstjórn þá afgreiðslu á fundi 25. s.m. Aðalskipulagsbreytingin tók gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 24. mars 2026.
- Kærandi vísar til þess að umrædd breyting á aðalskipulagi hafi verið gerð fyrir einn aðila. Spyr kærandi hvers vegna leyfi séu veitt fyrir skrifstofur, heildsölu og fyrirtæki af öllum toga án þess að nokkurt aðhald sé veitt.
Niðurstaða
- Samkvæmt 1. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 verða ákvarðanir sem Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og ráðherra ber að skipulagslögum að staðfesta ekki bornar undir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Í 3. mgr. 29. gr. sömu laga kemur fram að aðalskipulag sé háð samþykki sveitarstjórnar og staðfestingu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og ráðherra í þeim tilvikum sem hann skal staðfesta aðalskipulag. Breyting á aðalskipulagi er að sama skapi háð staðfestingu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og eftir atvikum ráðherra, sbr. 1. mgr. 36. gr. laganna, en þó einungis staðfestingu stofnunarinnar ef um óverulega breytingu er að ræða, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Hin kærða ákvörðun felur í sér samþykki bæjarstjórnar Vestmannaeyja á breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 en samkvæmt skýrum fyrirmælum skipulagslaga brestur úrskurðarnefndina vald til að taka þá ákvörðun til endurskoðunar. Verður kærumálinu því vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kæru á ákvörðun bæjarstjórnar Vestmannaeyja frá 25. nóvember 2025 um að samþykkja tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 vegna landnotkunarreitana F-1, AT-4 og L-4 við Ofanleiti er vísað frá úrskurðarnefndinni.
