Árið 2026, föstudaginn 12. júní, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2606005, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Vestmannaeyja frá 25. nóvember 2025 að samþykkja tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis við Ofanleiti og breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Ofanleitisveg.
Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. júní 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir B-Sól ehf., eigandi Ofanleitisvegar 10, þær ákvarðanir bæjarstjórnar Vestmannaeyja frá 25. nóvember 2025 að samþykkja tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis við Ofanleiti og breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Ofanleitisveg. Er þess krafist að ákvarðanirnar verði felldar úr gildi.
Málsatvik og rök
- Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja 11. júní 2025 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Ofanleiti og tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis við Ofanleiti. Samhliða var samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 skv. 31. gr. skipulagslaga. Gerði tillaga að breytingu deiliskipulags frístundabyggðar við Ofanleiti ráð fyrir að lóð við Ofanleitisveg 26 yrði færð út fyrir mörk deiliskipulagsins og yrði hluti af nýju deiliskipulagi athafnasvæðis í Ofanleiti. Auk þess yrðu fjarlægð svæði fyrir rotþró, sorp og sparkvöll. Tillaga að nýju deiliskipulagi athafnasvæðisins gerði ráð fyrir að lóð við Ofanleitisveg 26 yrði færð yfir á nýtt deiliskipulag athafnasvæðis við Ofanleiti. Stofnaðar yrðu tvær nýjar lóðir í suðaustur-enda svæðisins á landi sem þá tilheyrði landbúnaðarsvæði, auk þess sem gert var ráð fyrir nýjum byggingarreitum fyrir athafnastarfsemi við Ofanleitisveg 25 og 26 og á nýjum lóðum við Ofanleitisveg 30 og 30a. Tillögurnar voru auglýstar frá 9. september til 21. október s.á. og bárust athugasemdir á auglýsingatíma þeirra.
- Málið var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 19. nóvember s.á. að lokinni auglýsingu. Lögð var fram sameiginleg greinargerð vegna athugasemda vegna allra skipulagsáætlananna og svara við þeim. Samþykkti ráðið að staðfesta skipulagsáætlanirnar í Ofanleiti, þar með talið breytingu á aðalskipulagi og var erindinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar sem samþykkti á fundi sínum 25. nóvember 2025 breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Ofanleiti, deiliskipulag athafnasvæðis við Ofanleiti og breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035. Tóku greindar skipulagsáætlanir gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 27. mars 2026.
- Kærandi vísar til þess að hann hafi með bréfi, dags. 21. október 2025, mótmælt fyrirhuguðum breytingum og þeirri málsmeðferð sem málið hefði fengið. Breyting skipulags úr frístundabyggð í athafnasvæði væri grundvallarbreyting á eðli svæðisins og hefði í för með sér verulega skerðingu á gæðum þeirra sem þar dveldust. Gerðar hefðu verið athugasemdir við niðurstöður umhverfismats þar sem breytingin hefði veruleg áhrif á sumarhúsalóðir á svæðinu m.t.t. þess eðlismunar sem væri á starfsemi sem gert væri ráð fyrir á athafnasvæðum og sumarhúsasvæðum. Umhverfismatið hafi ekki verið unnið með fullnægjandi hætti né væri það óhlutdrægt. Þrátt fyrir að heimildir væru í lögum til breytinga á skipulagi eigi hagsmunaaðilar rétt á að búa við stöðugleika í skipulagsmálum. Engar málefnalegar eða lögmætar forsendur væru fyrir breytingunni og veigamiklar ástæður þurfi til að breyta tiltölulega nýlegu skipulagi í hverfi sem þegar hafi verið byggt upp á forsendum gildandi skipulags. Um sé að ræða brot á réttmætum væntingum kæranda og réttmætisreglu stjórnsýsluréttar.
- Kæranda hafi borist bréf um afgreiðslu tillagnanna, dags. 30. mars 2026, með bréfi sem póstlagt hafi verið 28. apríl s.á. en hafi ekki borist í póstkassa hans fyrr en 11. maí s.á.
Niðurstaða
- Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er kærufrestur til nefndarinnar einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um þá ákvörðun sem kæra lýtur að. Sé um að ræða ákvörðun sem sætir opinberri birtingu telst kærufrestur frá fyrstu birtingu ákvörðunar skv. 2. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
- Í 28. gr. stjórnsýslulaga er fjallað um áhrif þess ef kæra berst að liðnum kærufresti. Ber þá skv. 1. mgr. ákvæðisins að vísa kæru frá nema að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að hún verði tekin til efnismeðferðar. Tiltekið er í athugasemdum með 28. gr. í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum að við mat á því hvort skilyrði séu til að taka mál til meðferðar að loknum kærufresti þurfi að líta til þess hvort aðilar að málinu séu fleiri en einn og með andstæða hagsmuni, eins og raunin er í máli þessu.
- Hinar kærðu ákvarðanir voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda 27. mars 2026 og tók kærufrestur að líða degi síðar, sbr. 1. mgr. 8. gr. sömu laga. Mátti kærendum vera kunnugt um hinar kærðu deiliskipulagsákvarðanir frá opinberri birtingu hennar. Kæra í máli þessu barst úrskurðarnefndinni 5. júní 2026 og var kærufrestur þá liðinn. Verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni enda ekki talið unnt, eins og atvikum er háttað, að taka málið til meðferðar að liðnum kærufresti samkvæmt fyrrgreindum undantekningarákvæðum 28. gr. stjórnsýslulaga enda hefur lögmælt opinber birting ákvörðunar þá þýðingu að almenningi telst vera kunnugt um hina birtu ákvörðun.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
