Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

UUA2601009 Hafnagata

Árið 2026, föstudaginn 13. febrúar, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar um­hverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, sbr. 1. mgr. 2. gr., fyrir:

Mál nr. UUA2601009, kæra á ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar frá 16. janúar 2026 um að samþykkja að byggð verði geymsla á lóð nr. 27 við Hafnagötu í Höfnum. 

Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur

úrskurður:

  1. Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 19. janúar 2026, kærir eigandi jarðarinnar Hvamms, þá ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar frá 16. janúar 2026 að samþykkja að byggð verði geymsla á lóð nr. 27 við Hafnagötu í Höfnum. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Þess er jafnframt krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Þykir málið nægilega upplýst til að það verði tekið til endanlegs úrskurðar og verður því ekki tekin afstaða til síðargreindrar kröfu.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjanesbæ 12. febrúar 2026.

Málsatvik og rök

  1. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar 7. nóvember 2025 var tekið fyrir erindi eiganda Hafnagötu 27 í Höfnum um heimild til að byggja að geymslu. Er því lýst í fundargerð að mannvirkið muni rísa á óbyggðri spildu sem tilheyri lóð Hafnagötu 27 en sé „hinum megin við götuna.“ Samþykkti ráðið að grenndarkynna áformin skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að lokinni kynningu var erindið tekið fyrir aftur á fundi ráðsins 16. janúar 2026. Segir í fundargerð að andmæli hafi borist frá eiganda jarðarinnar Hvamms sem geri tilkall til spildunnar, en að mati ráðsins staðfesti gögn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eignarhald eiganda Hafnagötu 27. Var erindið samþykkt á fundinum og staðfesti bæjarstjórn þá afgreiðslu á fundi hennar 20. s.m.
  1. Kærandi telur hina kærðu ákvörðun ólögmæta enda sé spildan þar sem geymslan muni standa í eigu hans sem hluti af jörðinni Hvammi. Með því að samþykkja byggingu mannvirkisins hafi stjórnvaldið byggt ákvörðun sína á ófullnægjandi rannsókn og rangri túlkun eignar­heimilda. Sé ákvörðunin því ólögmæt.
  1. Af hálfu eiganda Hafnagötu 27 er bent á að í fasteignaskrá og kortagrunni landeignaskrár sé hin umdeilda spilda sýnd sem hluti af lóð Hafnagötu 27. Það ásamt þinglýstum heimildum sýni svo ekki verði um villst að Reykjanesbær hafi verið í fullum rétti þegar erindi um byggingu geymslunnar hafi verið samþykkt. Stjórnvöldum beri að styðjast við opinberar skráningar þar til þeim hafi verið hnekkt fyrir dómi. Fyrirliggjandi ágreiningur sé að auki einkaréttarlegs eðlis sem heyri undir dómstóla að skera úr um en ekki úrskurðarnefndina.
  1. Sveitarfélagið bendir á að ekkert byggingarleyfi hafi verið gefið út. Um hafi verið að ræða grenndar­kynningu sem hafi endaði með að ekki hafi verið gerð athugasemd við byggingar­áformin.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nefndin það hlutverk að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreinings­málum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 verða þó ákvarðanir sem ekki binda enda á mál ekki kærðar til æðra stjórnvalds.
  1. Afgreiðsla umsóknar um byggingarleyfi og útgáfa þess er í höndum byggingarfulltrúa samkvæmt ákvæðum laga nr. 160/2010 um mannvirki, sbr. 2. mgr. 9. gr., 11. gr. og 13. gr. laganna. Hin kærða ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar um að samþykkja byggingu geymslu á lóðarspildu sem ráðið telur að tilheyri lóð Hafnagötu 27 var tekin að lokinni grenndarkynningu, sbr. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Felur hún ekki í sér lokaákvörðun í skilningi áðurgreinds 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga heldur er hún liður í málsmeðferð sem eftir atvikum lýkur með samþykki byggingarfulltrúa á byggingaráformum. Liggur því ekki fyrir hendi nein sú ákvörðun sem borin verður undir úrskurðarnefndina og verður kærumáli þessu af þeim sökum vísað frá nefndinni.
  1. Bent er á að ljúki málinu með því að byggingarfulltrúi samþykki hin umdeildu byggingaráform er sú ákvörðun eftir atvikum kæranleg til úrskurðarnefndarinnar.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.